Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1925, Blaðsíða 18

Læknablaðið - 01.03.1925, Blaðsíða 18
48 LÆKNABLAÐIÐ Kreftsygdommene i Gol og Hemsedal 1902—1921, af Just Thoner, dist- riktslæge. Kristiania 1924. Þannig heitir all-löng bók, eftir norskan hér- aSslækni, sem eg hefi kynst á ferðum minum. Bók þessi er aB tvennu leyti merkileg: Hún gefur margs konar upplýsingar um þennan sjúk- dóm, sem nú vekur athygli um öll lönd, og útbreiSslu hans, og hún sýnir það, svart á hvítu, að jafnvel afskektir héraðslæknar hafa nóg vísinda- leg verkefni, ef þá brestur hvorki áhuga né elju. Héraðslæknir þessi hefir nú í 20 ár rakið með mestu nákvæmni allan feril sjúkdómsins i héraði sínu, og ekki eingöngu bókfært sjúklingana, heldur alla þeirra ætt, svo engu mannsbarni er slept. Um 2000 menn hafa verið Ijókfærðir, en sjúk- lingatalan var 120. Niðurstaöa bókarinnar er frekast sú, aö krabbamein sé hvorki ættgengt né smitandi, en sæki á menn, er þeir komast á afturfararskeið, aftur minna á menn í hárri elli. Niðurstaöan er því frekar neikvæð en jákvæð. Við því verður ekki gert, og gildi hennar rýrnar ekki fyrir það. Héraðslæknir Thoner sagði mér meöal annars: „Það hefir verið mér ein hin mesta dægrastytting i einverunni og ánægja um dagana, að fást við þessar rannsóknir. Eg hefi haft ákveöið verkefni að vinna að í öll- um frístundum, og finn, að það gefur lífinu meira gildi en annars myndi verið hafa.“ Eg sá ættartölur hans, töflur og uppdrætti. Allur frágang- ur á þessu var hinn prýöilegasti. Hann hefir nú starfað að þessu í 20 ár, og fengið heiður og sóma fyrir vikið. Er ekki þetta dæmi norska héraöslæknisins athugavert fyrir íslenska héraðslækna? Margt getunr vér gert, ef vér vildum. G. H. F r é 11 i r. Embaetti. Professor chirurgiæ viS Háskólann. Um- sóknarfrestur er útrunninn og er GuSm. Thoroddsen eini umsækjandinn. Vestmannaeyja- og Rangár-héruö hafa verið auglýst laus, og er um- sóknarfrestur til 1. april. Lausn frá embætti hefir Ólafur Gunnarsson, héraöslæknir í Miöfjarðar- héraði, sótt um. Eiríkur Kjerúlf hefir nýlega veriS á ferS hér i bænum. Niels Dungal fór utan 1. þ. m. Eiríkur Björnsson, stud. med., gegnir héraðslæknisembættinu í Ólafs- vík meðan Halldór Steinsson situr á Alþingi. Sanocrysinlækningar eru nú bvrjaðar á Vífilsstöðum og á franska spítal- anum i Reykjavik. Læknadeild í Bergen. Nefnd, skiiiuS af kenslumálaráðuneytinu norska, hefir lagt það til, að læknadeild verði stofnuð í Bergen sem allra fyrst. (Tidens Tegn, 13. jan. 1925). Landsspítalinn. Samkvæmt ákvöröunum seinasta Alþingis hefir GuS- jón húsameistari Saniúelsson nú gert nýjan uppdrátt aö Landsspítala, og er áætlað, að byggingin muni kosta 700—800 þús. kr. Rúm verða þar fyrir ca. 100 siúklinga. FJKLAGSPnENTSMIDJAN

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.