Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.1934, Side 32

Læknablaðið - 01.01.1934, Side 32
2Ó LÆICNABLAÐIÐ staö. —• Mætti vænta verkana á bólgur og maligna tumora — en til þess þarf bylgjulengdin aö vera fast ákve'öin, því ábrifin breytast ef bylgju- lengdin breytist um nokkra cm. Yfirleitt eru verkanir af útstuttum bylgjum því betri, því styttri og veikari sem geislunin er. Cancerstofnuninni í Berlin hefir tekist aö uppræta cancer í alt aö 80% meö 3—4 metra bylgjum, án þess aö skemma heila vefinn. (Dýratilraunir). Tilraunir viröast hafa leitt í ljós aö ýmsar mjög nákvæmlega afmark- aðar bylgjulengdir í þessum hluta liylgjustigans geti hindrað vöxt eða jafnvel drepið sýkla (streptoc., stophylec. og gonoc.) en aörar bylgju- lengdir jafnvel bæti vaxtarskilyröin. Ef þetta reynist rétt veröa neista- tækin óhæf til lækninga á smitsjúkdómum. Utstuttubylgjurnar viröast geta breytt samsetningu eggjahvítu mole- chylsins, t. d. veikir geislun toxin og antitoxin svo að þau þolast langt- um stærri skömtum en ella. Útstuttarbylgjur valda alvarlegum taugatruflunum (óróa, depression, svefnleysi og höfuöverk) ef menn eru lengi undir áhrifum þeirra. Gegnhitun með útstuttum bylgjum hefir lítil áhrif, en aftur á móti svarar gegnhitun meö stut'tbylgjum til diathermi. gegnhitunar (den ideale diathermi. I stuttu máli eru verkanir útstuttra bylgna þessar: 1. Háræðaþensla meö blóösókn. 2. Aukinn phagocytosis. 3. Veiklun eöa deyöing sýkla. 4. Veiklun toxina. Greinarhöfundurinn kemst að eftirfarandi niðurstöðu með tilliti til ár- angurs af útstuttbylgjulækningum: Þær meiga sin oft meira en allar aðrar lækningar, og verka oft þar, sem alt annað hefir reynst árangurslaust. Eins og gefur að skilja verður árangurinn því aðeins góöur að indication- ir séu réttar, og þarf þvi helst samvinnu milli skurölæknisins og meðala- læknisins annars vegar og útstuttbylgjusérfræðingsins hinsvegar. Sé Þessu svo fyrir komiö, og rafmagns sérfræðingurinn kann sitt starf, verð- ur árangurinn öllum til ánægju. Ekki er hægt að segja fastákveðið um indicationir ennþá, en helstar má nefna þessar: Takmarkaðar bráðabólgur (i mótsetningu við diathermi), myalgiur, hægfara liðabólgur, arthritis deformans, og ef til vill paralysis ])rogressiva. Einn góðan eiginleika hafa útstuttbylgjulækningar, og liann er, að þær verka kvalastillandi frekar en aörar lækningaaðferðir. Aö endingu er listi yfir sjúkdóma ])á sem greinarhöf hefir notaö stutt- bylgjur og útstuttbylgjur viö, í þessi tvö ár sem hann heíir haft tækin. Eru þar allskonar smáígeröir, frá kýlum upp í brjóstamein og abscessus ad anum, phegmonur, phlebitis, otitis media, sinuitis frontalis og maxillaris, methritis, prostatitis, salpingitis (acuta og chronica) arthritis, ischias o. fl. Arangurinn virðist oft ágætur, en tölurnar of lágar til að byggja á.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.