Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1934, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.01.1934, Blaðsíða 38
32 LÆKNABLAÐIÐ vandlega læknissko’ðun ? Hversu sem að er fariö, smitast nálega allir, að minsta kosti bæjarbúar, áður en þeir verða miðaldra. Sé svo, er ekki mik- ils að vænta af einangrun berklaveikra i þá átt að útrýma veikinni. Hvernig sem þessu er farið, þá sýnist þverrun líerklav. ekki standa i verulegu sambandi við nýtískuvarnirnar, sem hófust um aldamótin. Veik- in fór að þverra i Stokkhólmi 1830—60, í Englandi 1851—60, í Osló 1871—75 — löngu áður en nokkrum vörnum var beitt. í Nýja Sjálandi er veikin afarlitil og þar eru þó varnir litlar sem engar. (O. Scheel T. n. L. '33 bls. 1236). G. H. Greining syfilis frá öðrum sjúkd. er oft og einatt erfið, jafnvel i byrjun en áríðandi mjög að vita vissu sina. í raun og veru er það réttmæt krafa að ætíð sé gerð smásjárrannsókn og leitað eftir sýklum, helst í „Dunkelfeld“, bæði við frumsæri og smitandi útbrot. Því miður hafa fæstir læknar tæki og æf- ingu til þessa, en úr þessu mái bæta með því að sjúga serum frá yfirborði sársins eða fleiðursins upp í glerhárpípur og bræða fyrir báða enda. Hreinsun er einföld, hitun í spirituslaga. Pípurnar má síðan senda á rannsóknarstofu. Þó ótrúlegt sé haldast sýklarnir lifandi í pípunum allt að 80 dögum. Pípurnar hafa verið sendar í pósti, en annars væru þær vafalaust best geymdar í kulda, þó án þess að frjósa. (L. W. Harrison, í Lancet 20. jan '34). Hálsbólga á börnum og unglingum hefir oft og einatt alvarlegan fylgifisk: liðagigt og hjartasjúkdóm. Þess vegna er það rétt, ef unt er að ná til rannsóknastofu, að spyrja ekki aðeins um hvort barnaveikissýklar finnist, heldur einnig strepococci hæmo- lytici. Finnist þeir á að einangra barnið þangað til sjúkd. er genginn um garð og auk þess fara mjög varlega með barnið í afturbatanum. Veitir ekki af að læknir skoði það á hverri viku fyrsta mánuðinn. Venjulega líður 1—3 vikur frá hálsbólgukastinu þangað til liðagigtin gerir vart við sig. (W. Sheldon, Lancet 17. ókt. '33). F r é 11 i r. Sjúkrahús Hvítabandsins í Reykjavík er nýtekiö til starfa. Yfirlæknir er ráðinn Kristinn Bjarnarson, en öðrum læknum er heimilt að. stunda þar sjúklinga sína eftir samkomulagi við hann. Kandidatsplássin í Danmörku: Á Bispebjerg spítala hefir Axel Blön- dal verið ráðinn frá 1. april n. k. Héraðslæknirinn á Siglufirði hefir sótt um lausn frá embætti frá 1. júli n. k. Héraðslæknisstaðan á Hofsós er laus frá 1. júní n. k. Umsóknarfrestur til 1. apríl. Innheimtu og afgreiðslu Lbl. annast Rannsóknastofa Háskólans, Rvik. Félagsprentsmiðjan.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.