Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 10

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 10
íoó 34 illkynja. í 6 skipti var ályktun hans skökk og í 2 skipti óákveöin (5,2—7,2%), en viö röntgenskoðun sömu sjúklinga kom í ljós, aö J ályktanir voru skakkar og 15 óá- kveönar; hinsvegar sáust sárin oft- ar á röntgen en viö gastroscopia. Þegar báðar aðferðir voru lagðar saman, reyndist útkoman rétt í öllum tilfelium nema einu, en hér er viö að bæta, að slíkur úrskurður fæst raunar ekki staðfestur fyr en eftir á, þ. e. viö smásjárskoðun á sárinu sjálfu, úr því að sýnt er, að báðum aðferðum getur skeikað. Þar að auki sáust rúm 15% sár- anna alls ekki við gastroscopia. Það er þó engum vafa undirorp- ið, að gastroscopia er einhver hin mikilvægasta irannsóknaraðferð einmitt viö aðgreiningu góökynja og illkynja magasára, en þó þvi aðeins, að hún sé í höndum mjög reyndra og æfðra lækna á því sviði. Af þessu yfirliti er ljóst, hversu fádæma erfitt er að greina á milli góðkynja og illkynja magasára, en að vísu bregðast sjaldnast öll venjuleg aðgreiningareinkenni í hverju einstöku tilfelli, en þó býsna oft, eins og þau dæmi bera með sér, er ég hefi haft tækifæri til aö at- huga ,og mun nú stuttlega gera grein fyrir. Síðan ég byrjaði lækningar hér i bæ, árið 1916, hefi ég rekið mig á. meðal eigin sjúklinga, 9 tilfelli af ulcus-cancer, fyrsta tilfellið þó ekki fyrr en á árinu 1922. Hinsvegar hafði ég á fyrstu praksisárum mínum hér hitt fyrir nokkur tilfelli af sáraæxlum (ulcus tumor), sem flestir skurðlæknar kannast við og sem dæmd voru oft óviðráðanleg krabbamein viö aögerðina, en lifðu langa æfi þar á eftir, í trássi við alla lækna og vísindi, enda þótt aðgerðin væri ekki fólgin í öðru en prófskurði. Læknablaðið eða í hæsta lagi í gastro-entero- anast. Hér fara á eftir allstyttar sjúkra- sögur þessara 9 sjúklinga, auk tveggja magasárs-sjúklinga, sem skornir voru upp vegna ákveðinna grunsemda um illkynja sár, til samanburðar við hina. ) G. R., 50 ára bóndi, leitaði til mín 22. apr. '22. Sárir kvala- verkir og vindspenningur fyrir bringspölum í um 20 ár. Periodici- tet. Einkennin hafa ágerzt mjög síðustu 2 mán., þau korna 1—2 klst. p. c., við sult og stundum að nóttu til, versna einkennin við á- reynslu og þyngri mat. Matarlyst er góð og hann heldur holdum. Hann er grannholda, rjóð- ur í andliti og hraustlegnr. Hglb. 90% (L. Pet.) Steth. neg. Abdo- men: Eymsli í cardia. Ewald: 130 ccm. fr. vel chymific. Boas 15. Kongo 30. phen. 45. Kemp 6 klst. mínus ret. Fæces —f- bl. (3sv- ar.) Röntgen: mjog stór nische á curv. min. Operation 4. sept. Stórt callöst sár ríður yfir curv. rninor með grunriu crater, er reyndist vera 4 cm. í þvermál. Brúnir sársins eru harðar og skarpar. Grunur um illkynja sár. Resection: a. m. Bil- roth II. Microscopia: Cancer scirr- hosum. Sjúkl. þessum leið ágætlega, þar til nú fyrir einu og hálfu ári, að hann fór að fá bringspalaverk og vind fyrir brjóstið. Fæces urðu -j—|—[- occult blóð. og röntgen sýndi grunsamar cancerbreytingar í magastúfnum. iSjúkl. dó fyrir hálfurn mán., 21 ári eftir aðgerðina. 2—3) Sjá Lbl. des. 1934. 4) G. G. 40 ára forstjóri. leitaði til mín fyrst 19. maí 1925, vegna pyrosis og sviða fyrir bringspölum með köflum undanfarin 1—2 ár,

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.