Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 32
122 LÆKNABLAÐIÐ Bágborin afstaða. Eftir Vilmund Jónsson landlækni. TrúnaSarlæknir Reykjavíkur ■ kaupstaöar, Árni Pétursson, beinir nokkrum völdum oröum til mín í 5. tbl. Læknablaösins þ. árg. Er til- efniö tvö embættisbréf, er ég leyföi mér aö birta í Heilbrigöisskýrslum 1940, en þar er vikiö aö efni, sem læknir þessi mun telja sig öörum fremur sérfróöan og dómbæran um, og færi vel á, aö hann væri. miöað við tíma þá, er vér lifum, og trúnaðarstööu þá, er hann skip- ar. Biö ég góöfúsan lesanda aö varast aö taka það svo, að mér detti i hug aö halda mér til jafns viö hann um fræðina, þó að ég freistist til aö þiggja góö boö rit- stjórnarinnar um að birta nokkur fáljreytt orö til andsvara, enda mun gæta þess trúlega að halda mér sem fastast viö hina alþvölegu hlið málefnisins, en sneiöa hjá hinu, sem háfleygara er. 1. Þá er þar fyrst til aö taka, að með allri virðingu fyrir vísindun- um beiðist ég engrar afsökunar á þeirri notkun móöurmáls míns að nefna saurlifnað saurlifnað. Og enn síður fyrir þaö, að sérfræðingn- um fatast undarlega nákvæmnin, er hann telur mig þýða „prostitution“ með orðinu saurlifnaður einu i stað „saurlifnaður ... stundaður í at- vinnuskyni", sem ekki fer á milli mála, að ég geri. Nú vil ég trúa því, sem Á. P. segir, aö hann hafi „enga löngun til“ að taka skakkt upp mín orð, sem hann gerir sig þó sekan um ekki einungis í þessu eina tilfelli, og verður þá hitt að vera satt, að hann geti ekki betur. Ber góður vilji að vísu fagurt vitni frómu hugarfari, en er ekki einhlít- ur í rökræðum. Satt má það vera, að fiéiti hugtaka meö nokkrum til- finningablæ geti ruglaö skynsam- lega dómgreind ístöðulítilla sálna, en svo er það þá á báða vegu, aö heiti má meta ýmist um of niðr- andi eöa um of fegrandi. Legg ég það undir dóm greinagóðs lesanda, hvort heitið „saurlifnaður i at- vinnuskyni" sé miður viðeigandi á atvinnugrein, sem viö liggur allt aö tveggja ára fangelsisvist í al- mennum hegningarlögum vor Is- lendinga, nýsömdum af hæfustu sérfræðingum, samþykktum á- greiningslaust að þessu leyti á Al- þingi og staöfestum af konungi 15. Ifebrúar 1940, en tæpitunguheiti þau í Ásta-Brandsstil, sem Á. P. stingur upp á og eru svo velluleg, að ég fæ mig ekki til aö nefna í björtu. En séu þau engu siður bet- ur viðeigandi en forn og góö og gild islenzka, mun þörf á að koma viðar við og skipta um heiti ýmissa annarra hugtaka, sem hegningar- lögin íjalla um. Svik gæti þá með- al annars verið varhugavert að kalla svik, þjófnaðinn þjófnað og jafnvel morðin morð. Og vissu- lega er þaö ofar mínum skilningi, að unnt sé aö ræða af skynsam- legu viti um viöbrögö við siðferð- isvandamálum almennings, án þess að fengizt sé við hugtök meira eða minna lituð „af siðgæðishugmynd- um þjóðarinnar", með því að ég ætla þær hugmyndir, svo illa þokk- aöar sem þær kunna að vera af Á. P., einmitt vera býsna nærri kjarna þeirra mála. 2. Næst er lýst eftir því, hvar íslendingar hafi til skamms tíma stært sig af því, að hér á landi væri „ekki eða lítið“ stundaður

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.