Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 29
LÆKNA B LAÐ IÐ breyting á námi hjúkrunarkvenn. anna, aö Hjúkrunarkvennaskóli ís- iancls var settur á stofn á vegum Landsspítalans og ljúka hjúkrun- arnemarnir þar prófi eftir 3ja ára nám, en framhaldsnámið á NorS- urlöndum fellur niSur. Síöustu ár- in njóta hjúkrunarnemarnir nokk- urra vikna forskólakennslu, áður en aSalnámiS hefst. — Samt sem áSur var flestum íslenzkum hjúkr- unarkonum útveguS vist um I—2 ára skeiS á norrænum sjúkrahús- um, á vegum norrænu samvinnunn- ar. Takli F.Í.H. þaS mikinn feng, aS hafa aðgang aS hinum stærri sjúkrahúsum og heilsuverndar- stofnunum á NorSurlöndum, enda hefir reynslan orSiS sú, aS hjúkr- unarkonurnar, sem út hafa fariS. hafa aukiS vel viS menntun sína. Ætla mætti nú, aS námsmálum okkar væri vel borgiS meS starf- rækslu Landsspítalans. En sá var IjóSur þar á, aS í þeirri byggingu var ekki einu sinni gert ráS fyrir híbýlum hjúkrunarkvennanna, hvaS þá heldur hjúkrunarnema. Yfirhjúkrunarkona spitalans hefir frá byrjun búiS viS híbýlakost, sem er til smánar fyrir stéttina. Hjúkr- unarkonur spítalans voru allar neyddar til þess aS taka herbergi á leigu utan spítalans. Kennslukona Hjúkrunarkvennaskólans, sem var ráSin fyrir 2 árum til aSstoSar yfirhjúkrunarkonunni, verSur einn- ig aS búa utan skólans. Hjúkrunar. nemunum er troSiS i þakhæSina. þannig aS nokkrar þeirra hafa bú- iS í herbergjum meS þakgluggum. 2—4 í hverju herbergi. Kennslu- stofu hafa þær enga út af fyrir sig og kennslugögn hafa ávallt ver- iS ófullkomin og af skornum skammti, fyrst og fremst af þeirri ástæSu. aS hvergi hefir veriS staS ur í spítalanum til varSveizlu slíkra áhalda. Hjúkrunarnemárnir hafa 119 enga dagstofu, ekkert bókasafn og ekkert hijóSfæri til afnota, og mun þaS vera algert einsdæmi meS heimavistarskóla, jafnvel hér úti á íslandi. Þar aS auki er engin kennslubók til á íslenzku fyrir hjúkrunarnemana og hafa þær orS- iS aS notazt viS danska kennsiu- bók, sem er orSin úrelt í mörgum greinum. Ef hjúkrunarnemarnir hefSu ekki ávallt notiS mikillar velvildar forstöSukvenna sinna á spitalanum, sem ávallt hafa reynt aS gera þeim vistina eins þolan- Jega og unnt hefir veriS, er hætt viS aS fleiri hefSu gefizt upp á náms- árunum en raun hefir orSiS á. Þessi „gleymska“, meS aS ætla Hjúkrunarkvennaskólanum viSun- andi húsakost i byggingu spítal- ans, sem þó allir töldu sjálfsagt aS yrSi starfræktur þar, sannar enn skýrar réttmæti þess, sem ég hefi alltaf haldið fram viS ýmsa máls- metandi lækna, aS viS allar sjúkra- húsbyggingar eigi aS vera hjúkr- unarkonur meS í ráSum. I fram- kvæmdanefnd Landsspítalabygg- ingarinnar var engin hjúkrunar- kona, og má' fullyrSa, aS margar óbætanlegar misfellur urðu á þeirri byggingu fyrir þá sök. Á síSari ár- um hafa hjúkrunarkonum aS vísu veriS sýndar teikningar af bygg- ingum, sem fyrirhugaS er aS reisa, en þá erfiSara um aS þoka. heldur en ef þær væru hafSar meS i ráS- um frá byrjun. Þrátt fyrir hin erfiSu skilyrSi, sem hjúkrunarkvennastéttin hefir átt viS aS búa, hefir henni tekizt furSu vel áS halda á málum sin- um. Samræmi er víSast komiS á í launakjörum og vinnutíma, þar sem fleiri starfa viS sömu stofnun. E11 styttingu vinnutíma er mjög erfitt aS framkvæma, þar sem 1 hjúkrunarkona vinnur viS sjúkra- hús eSa bæjarfélag, og er þaS at-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.