Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 22
112 LÆKNABLAÐIÐ Amsterdam 28—45%, Berlín 31%, SvíþjóS 52%, Danmörku 24.7% og í Edinborg- 36,7% (i, 2, 3). Hér á landi hafa slikar athug- anir á rottum ekki verið fram- kvæmdar enn, svo aö mér sé kunn upft. Á hinn bóg-inn hefir rottum fjölgað liér mikiS síöustu árin, og þar sem okkur lierast eflaust stöö- ugt nýir innflytjendur af þessu tæi, með skipum, sem fara víða um heim, þá er erfitt að huesa sér það, að mjög miklu minni sýking- arhætta sé hér á landi en t. d. í nágrannalöndum vorum. Bent er á þaö i ritgerð einni frá Skotlandi (4), að af 19 Weilsgulu- sjúklingum, sem voru til athugun- ar. höfðu 13 það að atvinnu, að hvo fiskeðahandleikaáannan hátt. Þar sem rottur höfðu þar greiðan aðgang að fiskinum, er talið, að fiskvinnufólki sé hættara við svk- ingu heldur en öðrum. í rannsókn- arstofnun í Edinborg var mér sögð eftirfarandi saga af rannsóknum þar: Fyrir nokkrum árum svktist hópur manna samtímis þar í horg- inni af Weilsgulu. Bráðlega tókst að finna orsökina til jiessa. Smitið var rakið til fiskhrúgu, sem legið hafði við höfnina næturlangt, en fiskurinn síðan seldur í smásölu um borgina. Margt af því fólki, sem sýktist, hafði einmitt hreinsað fiskinn og matbúið á heimilunum. Ég minnist á dæmi bessi. af jiví að mér virðist, að hér svipi svo rnjög til okkar aðstæðna. Gormsvkill sá. sem algengast er að orsaki Weilsgulu (L. ictero- hæmorrhagiae) og fyrr er getið. er 6—12 u á lengd og 0.1—0,15 u á breidd. Hann er mjög kvikur. og bað er sæmilega auðvelt að rækta hann. Hentugast er að at- huga hann lifandi í rökkursiá, en þó má sjá sýkilinn greinlega í lituðum vefjasneiðum, t. d. með Levaditi-litun. Fleiri aðferðir eru kunnar til að finna hann. Utan líkamans hefur sýkil’inn frekar lítinn lifsþrótt og þolir illa bæði hita og sýrur, þótt þær séu í miklum þynningum. Drepst hann á L2 klst. í 50°—-550 C., og á svipuð- um tíma í magasýrunni. Aftur á móti þolir hann vel frost og getur lifað i sjúku Iíffæri í 26 daga í kæliskáp. Sýkillinn er talinn lifa stutt i vatni, eða að minnsta kosti hakla sýkingarmætti sinum skamma stund. Til jiess að smitun sé líkleg frá vatni, þarf að vera um mikinn cg tíðan sýklaburð í það að ræða. Mikið hefur verið unnið að því að leita að þessum sýklum í vatni. Einna bezt hefur sú aðferð reynzt að ■ snöggraku blett á nag- grís, og láta dýrið vera um tíma ofan i vatninu. Séu sýklarnir fyrir hendi, bora þeir sér í gegnum húð- gríssins á snögga blettinum og or- saka sýkingu. Samskonar gormsýklastofn er algengur í hundum og hefur veriö nefndur eftir þeim Leptospira cani- cola. Þeir sýklar geta einnig orsak- að Weilsgulu í mönnum og hafa nákvæmlega sama form og útlit eins og L. ictero-hæmorrhagiae. Stofnarnir eru eingöngu greindir i sundur á því, að þeir framkalla mismunandi mótefni í blóðinu, og kemur sá munur fram við blóð- vatnsathuganir. Aðrir skyldir sýklastofnar og eins að útliti eru og þekktir, en valda öðrum siúk- dómum, t. d. L. hebdomadis og L. autumnalis (2). Greinilegu sjúkdómstilfelli af Weilsgulu má lýsa eitthvað á þessa Við (5, 6) : Eftir 7—13 daga meðgöngutíma kemur sjúkdómurinn fram með skjálfta og hitaveiki. Oft eru upp- köst ásamt niðurgangi, miklum

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.