Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 33
LÆ K NA B LAÐ I Ð 123 saurlifnaSur í atvinnuskyni, og er ég vændur um aS hafa gripiS um- mæli þar aö lútandi úr lausu lofti. Þessu er fljótsvaraö. Ég- hafSi hér sérstaklega í huga ununæli í bók, sem gefin var út á vegum nefndar þeirrar, er sá um minnisstæöa þátt- töku íslendinga í heimssýningu í New York fyrir fáum árum (Vil- hjálmur Stefánsson: Iceland. New York 1939). Á 119. bls. bókarinnar stendur þessi setning: ,,Strictly speaking there is no prostitu9on“. Ég hirði ekki aS leita í fleiri ritum, en ætla, aS þetta nægi til aS sýna, aS eyru Á. P. eru ekki óskeikul i þessu efni, svo vel sem hann telur sig hafa ,,lagt hlustir viö slíku“, og kann þaö aS standa í einhverju sambandi viö þá afstööu hans til þessara mála, að hann kýs að láta liggja á milli ,hlutia „hvort ástæða sé til fyrir þjóð (og þar á meðal hans eigin ])ióð) að miklast af eða blygðast sin fyrir“, að með henni sé saur- lifnaður rekinn sem atvinnugrein, algerlega ósnortinn af því, sem áð ur er að vikið, að bannað er í ný- settum almennum hegningarlög- um vorum og metið til refsingar að iöfnu við hveria aðra glæpi. Siálfur má ég með blvgðun játa á mig mikið sakleysi i þessum efn- um. Svo vel sem mér hefur verið ljóst frjálslvndi íslendinga í ásta- málum. og svo fjarri sem mér hef- ur verið að mæla þá öðrum fremur undan ýmiss konar miður loflegri lausung í þeim efnum, hef ég til skannns tíma haldið það tiltölu- leea nýtt. fyrirbrigði, að hér væri risin upp heil atvinnustétt vændis- kvenna, þ. e. stétt kvenna, er hefði eingöngu saurlifnað sér til lifsupp- eldis og stundaði þá ekki aðra at- vinnu nema ef til vill að yfirvarpi. En það er einungis þetta „allra lægsta þrep skækjulifnaðar", sem ég minnist á i upphafi fyrra bréfs míns og gefið hefur Á. P. tilefni til athugasemda sinna. Nú heyri ég í fyrsta sinn þá ný- stárlegu fornfræði á borð borna, að hér hafi saurlifnaður verið hafð- ur að atvinnu frá upphafi Islands- byggðar. Er vitnað um þetta af miklum lærdómi í gullaldarbók- menntirnar, og bætist hér nú til- komumikill þáttur í landssöguna. Nú má hver maður sjá, að slík greiðasala getur illa eða ekki orð- ið lifvænleg atvinnugrein nema í æði miklu fjölbýli, eða þar sem fjöldi karla fer verulega fram úr fjölda kvenna. Á söguöld vorri var hvergi fjölbýli til að dreifa nema helzt á Alþingi, og er augljóst mál og puntar heldur en ekki upp á mynd þá, er vér höfum af hinni glæsilegu þjóðarsamkomu vorri. að hóruhús hefir eftir þessu hlotið að vera rekið þar um þingtímann og viðskiptin verið ærið greið eða þá mjög höfðinglega borguð, ef upp úr ekki lengri vertíð hefur hafzt það, sem enzt hefur hlutað- eigendum til lifsuppeldis allt árið. í þessu ljósi verður og ekki tor- skilið, hvers konar skálar það voru, sem þær reistu „um þjóð- braut þvera“ í átthögum A. P.. skörungarnir Geirríður á Eyri vest- ur og Langholts-Þóra. „Geirríður ...... sat á stóli ok laðaði úti gesti“ og Þóra slíkt hið sama Þarf hér ekki framar vitna við, og má furðu gegna, að manni skuli ekki hafa dottið þetta í hug fyrr. 3. Um það, að hér í höfuðstaðn- um væri orðinn allstór hópur kvenna, er lifði eingöngu af saur- lifnaði, leyfði ég mér að taka gild an vitnisburð lögreglu Reykjavík- ur, og ætla eg engan geta verið um það dómbærari. í öðru orð- inu virðist Á. P. telja mér ó- heimilt að miða við þetta sem

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.