Læknablaðið - 01.06.1944, Blaðsíða 14
136
LÆ K N AB LAÐ I Ð
tanellae söniuleiöis. Hypofysis cere-
bri var á stær'Ö vi'Ö bláber.
Epiphysis femoris var tæplega
baunarstór beinkjarni, epiphysislína
hvit, skörp. Diaphysis var mjög
hörÖ, svo að hún varÖ ekki klofin
með hníf.
Sections diagnosis var : Athyreoi-
dosis. Dystrofia generalis. Broncho-
pneumonia. Enteritis. Heterotópia
renis déxtri et ovarii dextri. In-
farcti acidi urici renuum.
Hér var þá um að ræða telpu, er
vantaði gl. thyreoidea auk annarra
missmíða og dó er hún var 3. ára
og 2. mánaða.
Eins og ljóst er af framansögðu,
hafði hún utn þroska nær staðið
i stað frá fæðingu. Lengdin var um
60 cm, en hefði átt að vera rúm-
lega 90 cm., þyngdin var 4200 gr..
en hefði átt að vera um 14 kg.,
ef allt hefði verið með feldu. Eg
fjölyrði ekki frekar um ])etta til-
felli. Aðeins skal á það bent, að
athyreoidosis er mjög sjaldgæft
fyrirbrigði, og mun tæpast hafa
verið skýrt frá nema 20—30 til-
fellum i læknabókmenntunum.
4. Silicosis.
Fjórða og síðasta tilfellið er eg
þkýri frá er karlmaður, P. Þ.,
fæddur 2/3 1888, er sótti um ör-
orkulífeyri i fyrra vetur, þá 54 ára.
Kvartanir hans voru mæði og
þyngsli fyrir brjósti. ásamt al-
mennri vanlíðan og þrekleysi af
þeim sökum. Mæðin og brjóst-
þyngslin tóku að há honum til
muna kringum 1939, en hafa farið
smá versnandi síðan. Hann hefur
hvorki haft hita né svitnað um næt-
ur, en hóstað mikið og uppgangur
froðukenndur.
Matarlyst sæmileg, hægðir treg-
ar en þvaglát eðlileg. Svefn jafnan
góður, nema hósti og almenn van-
líðan hafi bagað. Hann hafði leg-
ið á Landákotsspítala þá um vorið
og einnig um haustið vegna brjóst-
veiki, án þess að fá bata. Hann var
skoðaður af Þórarni Sveinssyni
lækni þ. 7/12 1942.
Sjúklingurinn var í meðalholdum,
cyanotiskur i andliti. Thorax dálítið
aflagaður, að líkindum vegna bein-
kramar í æsku. Við percussio var
yfirleitt stuttur tón yfir lungunum
í heild sinni. Við auscultatio heyrð-
ist lítið til öndunar, og virtist sem
lungun mundu vera loftlítil með
hliðsjón af þvj, að percussions tónn
var stuttur, cyanosis i andliti og á
höndum, öndunartíðni 32 á min-
útu í fullkominni hvíld, en hjarta-
tónar reglulegri, ])ó að vísu nokkuð
daufir. Tensio var 150/95. Maður-
inn var stirður til hreyfinga í hrygg
og útlimum, og mæÖi fljótt til baga.
Þessi sjúklingur hafði fengizt
við steinhögg um langt skeið á veg-
um Reykjavíkurbæjar.
Þórarinn Sveinsson taldi mestar
líkur til, að hér væri um silicosis
að ræða, eftir kliniskum einkenn-
um að dæma, og sendi sjúklinginn
til nánari rannsóknar á Berkla-
varnastöð Reykjavíkur, er lét taka
röntgenmyndir af thorax. Sýndu
myndirnar grófan struktur út frá
hilusregiones báðum megin. Sums-
staðar sáust smáir, þéttir blettir bas-
alt í lungunum, likt og sést við
silicosis og ,,er ekki óliklegt, að unt
slikt geti verið að ræða“, segir í
umsögn röntgendeildar. Arcus aort-
ae var töluvert prominerandi. Rönt-
gendiagnosis: Fibrosis regionum
hilarium. Silicosis.
Eg tel. að litill vafi sá á, að hér
sé um silicosis að ræða. Hygg eg.
að þetta sé fyrsta tilfellið hér á
landi, þar sem silicosis hefir fund-
izt, og var sjúkdómurinn viður-
kenndur sem bótaskyldur atvinnu-
sjúkdómur af Tryggingarstofnun
ríkisins,