Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1944, Side 15

Læknablaðið - 01.06.1944, Side 15
LÆK NABLAÐIÐ 137 f Jón Arnason, héraðslæknir. IN MEMORIAM. Jón Arnason héraðslæknir í Öxarfjaröarhérafii cló eftir stutta legu 10. jan. s. 1. BanameiniS var lungnahólga. Fædclur 10/9 1889 í GarSi í Mývatnssveit. Olst hann þar upp til þess er hann fór í GagnfræSaskólann á Akureyri og lauk þaSarí gagnfræSaprófi voriS 1912. Hélt áfram námi í Mennta- skólanum í Reykjavík og varS stúdent 1915. LæknisfræSinámi iauk hann meS embættisprófi í febrúar 1921 úr Háskóla Islands. Siglcli þá þegar til framhaldsnáms i Kaupmannahöfn og var i júli s. á. settur og síSar skipaSur héraSs- læknir í Öxarf jarÖarhéraSi. Sat hann i því embætti til dauSadags. Auk embættisverka hlaut hann, sem eSlilegt er, aS gegna ýmsum trúnaSarstörfum fyrir sveitarfélag sitt og sýslu, t. d. formanns og bókavarSarstarfi um langt skeiS viS bókasafn N.-Þingeyinga sem var stofnaS aS ráSum hans. Jón var kvæntur ValgerSi Sveinsdóttur frá Felli í SléttuhlíS, hinni ágætustu konu, og áttu þau 6 börn á lífi. ÞaS varS hlutskipti Jóns aÖ vinna ævistarf sitt allt í einu hinu erfiSasta sveitahéraSi landsins. Var hann vel undir þrældóminn i slíku starfi búinn er hann á upp- vaxtarárum sínum hafSi stundaS alla algenga vinnu sem tilféllst í sveit. á skólaárunum hverja þá vinnu sem skólapiltur er berst á- fram viS aS kosta sig sjálfur til náms, tekur og jafnframt þjálfaS sig á vetrum í íþróttum meira en venjulegt var í þá daga, encla varS hann hinn mesti ferSagarpur í víS- lendi héraðsins og traust hjálpar- hella þeirra, er vitjuSú hans. Stund- aSi hann sjúklinga sina af mestu alúS, og batt heimili sínu oft þunga bagga meS því að taka sjúklinga heim, er hann ekki gat látiS þeim fullnægjandi meSferS í té á annan hátt, þar sem sjúkraskýli fylgir ekki héraSinu. Þá hafSi Jón heitinn og ekki síSur áhuga á hinum aSalþætti héraSslæknisstarfsins, almennri heilsuvernd. Berklavarnarlögin komu til framkvæmda næstum samtímis og hann hóf starf sitt. Reyndi hann þá þegar aS grafast sem bezt fyrir hvernig ástatt væri um berklaveikina i héraSi sínu og fylgdist ætíS síSan mjög vel meS ástandinu í því máli í héraSi sínu. Sama máli gegndi um hverskonar aSrar farsóttir og tókst honum aS koma á venjufremur góSri sanr- vinnu milli sin og almennings um sóttvarnir. Jón var óvenjulega ritfær og gætti þess þegar á námsárum hans.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.