Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1944, Page 22

Læknablaðið - 01.06.1944, Page 22
144 gremja hans hafi ekki veri'Ö mest vegna þeirra atriða i grein minni, sem hann svaraði, heldur miklu fremur vegna þeirra, sem hann leiddi hjá sér að svara. Mér þykir leitt, hafi ég valdið sársauka á við- kvæmum stöðum, en hjá þessu varð ekki komizt málefnisins vegna. Árni Pjetursson. Leiðrétting'. í grein minni ,,Læknisafstaða“ í Lhl., 5. thl., 2. línu, 1. mgr., stend- ur: „ekki ósjaldan", i stað „ekki sjaldan", eins og í handritinu stóð. Á. P. Barnið „liggur í grasinu“ með- an ekki er skilið á milli. Þetta er gamalt mál. Englendingar segja líka “lying in the straw”. Líklega er þetta orðatiltæki frá þeim tím- um er torfgólf voru stráð hálmi e;Sa heyi og konan „lá á gólfi“. Aðalfundur L. R. var haldinn í Háskólanum þ. 8. marz siðastl. Stjórn félagsins, þeir Valtýr Albertsson, Theódór Skúla- son og Bergsveinn Ólafsson, baðst undan endurkosningu. Valtýr hefir verið formaður L. R. síðastl. 2 ár, og auk þess um alllangt skeið áður, en Bergsveinn gjaldkeri sið- astl. 7 ár. Nýja stjórnin er þannig skipuð : Þórður Þórðarson, sem áð- ur hefir verið ritari 1„ R. í mörg ár. var nú kosinn formaður, Krist- inn Stefánsson ritari og Kristbjörn Tryggvason gjaldkeri. Meðritstjór- ar Læknablaðsins, þeir Óli Hjalte- sted og Kristinn Stefánsson, báðust undan endurkosningu. í stað þeirra voru kjörnir Björn Sigurðsson frá Veðramóti og Jóhannes Björnsson (stjórn L.R. ræður aðalritstjóra til eins árs í senn). Aðalíundur Læknaíélags íslands verður haldinn, að öllu forfallalausu, í Reykjavík dagana föstudaginn og laugardaginn 25. og 26. ágúst. Aðalfundarefni verður launamálið, kjör héraðslækna og annara embættislækna yfirleitt. Ennfremur nýskipun læknishéraða og læknaskortur í sveitahéruðum. Fundarboð með dagskrá verður hverjum félagsmanni sent síðar. Stjórn L. R. Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er i Félagsprenlsmiðjunni h.f.. Reykjavik. Simi 1640. Pósthólf 570. Félagsprentsmiðjan li.f.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.