Læknablaðið - 01.09.1950, Side 10
102
aukafarvegir, sem leiða blóðið
frá aorta-svæðinu ofan við
þrengslin til aorta neðan við
þau, framkalla pulsation í hin-
um víkkuðu intercostalarteri-
um á thorax og arteriae mam-
mariae internae. Pulsation
þessi getur bæði sézt og fund-
izt medialt og neðan við
scapulae, einnig í fossa supra-
og infraclavicularis beggja
vegna, og niður með bringu-
beini báðum megin. Pulsation
frá arteria mammaria interna
getur breiðst niður á abdomen
svarandi til arteria epigastrica.
Venjulega heyrist óhljóð yfir
þeim stöðum, sem þessi óeðli-
legi æðasláttur finnst. Ber
mest á því milli herðablaða og
er það einkennandi fyrir coarc-
tatio aortae. Oft heyrist þetta
báðum megin við sternum og
niður á abdomen, Óhljóð þetta
heyrist í systolu, og myndast
við að blóðið ryðst gegnum
hlykkjóttar og mjög víkkaðar
collateral æðar.
Stethoscopia cordis. Tak-
mörkin eru venjulega eðlileg.
Þegar eingöngu er um coarc-
tatio aortae að ræða, en ekki
neina aðra hjartagalla, gefur
hlustunin engar sérstakar
diagnostiskar vísbendingar
Sökum hypei'tensionar er þó
annai' aorta-tónn hár og
klingjandi, en ekki heyrast
nein óhljóð. Taussig segir, að í
flestum tilfellanna finnist ekk-
ert athugavert við kliniska
LÆKNABLAÐIÐ
skoðun á hjarta hjá þessum
sjúklingum.
Þegar systolu-óhljóð heyrist,
getur það samkvæmt skoðun
Gross (1949) stafaö af eftirfar-
andi orsökum:
1„ Frá sjálfum þrengslunum
í aorta.
2. Við krappa beygju á stórri
æð, t. d„ á arteria mam-
maria interna, við upptök
hennar á arteria sub-
clavia.
3. Þegar samtímis finnst in-
terventriculer septumde-
fekt, eða galli í aortalok-
unum (þær eru þá „bicu-
spid“ eða tvíklofnar).
Stundum heyrist óhljóð
bæði í systolu og diastolu, sem
líkist „vélahljóðinu“ við opinn
ductus arteriosus, sem þá get-
ur verið til staðar, eða óhljóðið
við hinar mjög víkkuðu colla-
teral æðar getur líkzt þessu.
Gross segir að lítið sé upp úr
óhljóðunum leggjandi við co-
arctatio aortae, því að þau séu
mjög breytileg.
Af rannsóknum má nefna
línurit af hjarta. Venjulega er
lítið á því að sjá hjá fólki inn-
an tvítugs Hjá fullorðnum
sést oft vinstri hneigð og teikn
um coronarsclerosis. Breyting-
ar þessar koma þó enn betur í
ljós þegar línurit er tekið eftir
áreynslu.
Oftalmoscopia gefur stund-
um góðar upplýsingar. Sést oft
teikn um status hypertensivus