Læknablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 18
126
L Æ KNABLAfilD
Risíill og hlaupabóla.
(Zosler — varieellae).
Læknar hafa nú um alllangt
skeið, eða a. m. k. 1 40 ár, haft
grun um að samband væri
milli ristils og hlaupabólu, og
veitt því athygli, að ristill sésl
oft um þær mundir, er hlaupa-
bóla gengur. Er nú talið, að
sams konar virus sé að verki í
þessum sjúkdómum báðum.
Þannig segir J. Stokes, jr um
varicella: „It is caused by a vir-
us similar to that which induc-
es herpes zoster.“
Frá miðjum ágúst og þar til
vika var liðin af septembe?’
1950, fengu fyrst þrír sjúkling-
ar í Vífilsstaðahæli ristil á síðu,
og svo aðrir þrír hlaupabólu.
1) Karlmaður, 41 árs að
aldri, fékk ristil neðantil á síðu
um 15. ágúst.
2) Annar karlmaður, 21 árs,
fékk ristil í lumbal-regio 7
sept. og fylgdi vægur þroti og
eymsli í náraeitlum sömum
megin.
3) Þriðji karlmaðurinn, 72
ára gamall, fékk ristil neðar-
lega á síðu um 18. sept.
Enginn þessara manna hafði
sótthita. Útþotin náðu yfir
svæði frá miðlínu á baki að
miðlínu á kvið og virust bundin
við eina taugagrein. Verkir
hurfu alveg á 2—3 vikum..
4) Stúlka, 15 ára að aldri,
fékk hlaupabólu þ. 23. sept.
5) Hinn 5. okt, veiktist 27
ára kona af hlaupabólu. í 2—3
daga áður hafði hún kvartað
um allsára verki í h. síðu, en
ekkert sást á húð, þar til
hlaupabólu-útþotin komu,
dreifð jafnt um andlit og bol.
Þessi kona hefir extrapleural
pneumothorax, en exsudat sást
ekki né önnur skýring á verkj-
unum í síðunni„
6) Hinn 7. okt. fékk þriðja
stúlkan, 16 ára gömul, hlaupa-
bólu. Hún lá í sömu stofu og
stúlkan sem fyrst veiktist,,
Allar konurnar höfðu sótt-
hita, sú fyrsta þó mjög vægan
(37,8°). Þær höfðu allar mikil
útþot með sérkennum hlaupa-
bólu. Karlmennirnir höfðu ekki
haft hlaupabólu áður.
Timabilið milli fyrsta og
annars ihanns er í lengra lagi,
því venjulegt mun vsra að
telja meðgöngutíma ristils 7—
14 daga, en annars gæti tím-
ans vegna verið um að ræða
samfelldan faraldur„
Heimildir:
Joseph Stokes, jr.: Viral and
Rickettsial Infections of Man. bls.
395—399.
Ól. Geirsson.