Læknablaðið - 15.01.1953, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ
79
hvað það, er stjórninni þykir
stéttinni ósamboðið, jiótt ekki
sé skýlaust brot á lögum félags-
ins eða codex ethicus. Slíkum
úrskurðum stjórnarinnar má
skjóta til gerðardóms samkv.
codex ethieus, enda sé það gert
innan fjögurra vikna.
Víkja má félagsmanni úr fé-
laginu fyrir alvarlega van-
rækslu skyldustarfs eða vel-
sæmisbrot eða fyrir margítrek-
uð brot, þótt hvert um sig varði
aðeins sektum, ennfremur ef
liann neitar að greiða sektir.
Úrskurði stjórnarinnar um
brottvísun skal taka fyrir á
næsta fundi L. 1. [fulltniaráðs-
fundi] til staðfestingar eða
synjunar. Staðfesti fundurinn
úrskurð stjórnarinnar, getur
sakborningur skotið máli sínu
til gerðardóms skv. codex
ethicus.
Stjórn L. I. ákveður hvers
konar refsiaðgerðir i samráði
við aðildarfélag sökunauis og
framkvæmir aðildarfélag
refsiaðgerðir.
15. gr.
Almennt læknaþing skal
haldið eigi sjaldnar en annað
hvort ár í sambandi við aðal-
fund [fund fulltrúaráðsins].
Gefst þá öllum læknum, sem
þingið sitja, kostur á að
hera fram mál frá eig-
in brjósti, og ræða þau mál,
sem eru á dagskrá, áður en
fulltrúar greiða alkvæði um
þau. Á þingum þessum skal
flytja erindi um læknisfræði-
leg efni. Til fyrirlestrahalds
skulu fengnir vísindamenn og
læknar, innlendir og erlendir,
ef þess er kostur.
16. gi’.
Aðalfundur [Fulltrúaráð]
getur kosið heiðursfélaga,
lækna, vísindamenn eða aðra
velunnara félagsins. Skal það
gert á lögmætum fundi og þarf
samþykki % fundarmanna.
17 gr.
Lögum þessum verður að-
eins breytt á lögmætum aðal-
fundi [fulltrúaráðsfundi], þar
sem mættur er a. m. k. helm-
ingur fulltrúa. Tillögur um
lagabrevtingar skulu fylgja
fundarboðinu.
18. gr.
Lög þessi öðlast futlnaðar-
gildi, þegar breytingarnar á
skipulagi félagsins hafa náð
fram að ganga, og falla þá
iafnframt úr gildi lög félags-
ins frá 23. júní 1938.
ATH.: Tími vannst ekki til þess á
fundinum að lagfæra orðalag sem
skyldi, m. a. i sambandi við breyt-
ingar, sem samþykktar voru á síð-
ustu stundu. Slikar lagfæringar
verða væntanlega gerðar á næsta
aðalfundi, áður en lögin verða sér-
prentuð. En rétt þótti að birta lögin
nú í þeirra mynd, sem gengið var
frá þeim á binum síðasta aðalfundi
skv. eldri lögum og skipan félagsins.