Læknablaðið - 01.03.1955, Side 12
22
LÆKNABLAÐ IÐ
við slík tækifæri. Einnig stóð
til að Stefán Haraldsson mætti
þar með Baldri, en ekki er full-
víst hvort af því gat orðið.
I september í haust verður
ársþing World Med. Ass. hald-
ið i Róm. Ekki er enn vitað
hvort nokkur íslenzkur læknir
getur mætt þar.
Eitt aðaláhugamál W. M. A.
um þessar mundir eru lækna-
tryygingar. Um s.l. áramót
barst L. f. fyrirspurn um það
livernig þeim málum væri hátt-
að hér. Var einkum spurst fyr-
ir um elli og örorkulífeyri
lækna og hvort ekkja og börn
læknis nytu lífeyris. fslenzkir
læknar hafa lítt sinnt þessum
málum. Emhættislæknar njóta
að sjálfsögðu eftirlauna úr líf-
eyrissjóði og í nýútkominni
reglugjörð eru skýr ákvæði um
það hversu lengi starfsmönn-
um ríkisins skuli greidd laun i
veikindaforföllum (full laun
í 90—180 daga eftir embættis-
aldri og hálf laun jafnlengi).
Lög um almannatryggingar
ætla að sjálfsögðu læknum og
læknafjölskyldum bætur til
jafns við aðra borgara þjóðfé-
lagsins en þetta er ekki nóg.
Ekknasjóðurinn er enn lítils
megnugur. Því var það að lækn
ar sem starfa fyrir S. R. stofn-
uðu Tryggingarsjóð. Greiða
þeir i hann árlega 6%% af föst-
um tekjum sinum hjá samlag-
inu. Sjóður þessi er nú orðinn
allmyndarlegur (hátt á aðra
milljón). Þó að hann sé sér-
eignarsjóður, hefir hann gert
félagsskap lækna í Reykjavík
ómetanlegt gagn. Hverjum ein-
stökum lækni hefir liann verið
örfun til sparnaðar og segja
má, að með honum liafi lækn-
ar verið skyldaðir til þess að
spara. Á hinn bóginn hefir
sjóðurinn getað innt það hlut-
verk af hendi að vera láns-
stofnun fyrir lækna, sem réðust
í það stórvirki að hyggja yfir
sig. Þessi lánastarfsemi hefir
gert nokkrum læknum kleift
að liyggja, sem annars liefðu
orðið að slá því á frest. Auk
aðaldeildar sjóðsins, sem er
séreignasjóður eins og þegar
hefir verið getið, var mynduð
sérstök örorkutryggingadeild.
Sjóður þeirrar deildar skal
vera sameign þeirra lækna,
sem þátt taka í myndun hans.
Tekjur þessa sjóðs eru fram-
lög lækna, sem fé eiga í aðal-
deildinni og vextir hans sjálfs.
Hver læknir leggur lionum ár-
lega 1 % af inneign sinni í aðal-
deildinni en þó með vissum
takmörkunum. f örorkusjóði
munu nú um 100.000 kr. Lækn-
ar utan Revkjavíkur ættu að
athuga möguleika á því, að ger-
ast meðlimir í sjóðum þessum
eða þá að tryggja sig á annan
hátt. Með þeim breytingum
sem gerðar voru á skattalög-
unum sl. vetur, er læknum og
öðrum gert hægara með allar
tiyggingar, þar sem fé það sem