Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1957, Síða 25

Læknablaðið - 01.07.1957, Síða 25
LÆKXABLAÐIÐ 63 gismus án brevtinga í mænu- vökva. A s.l. ári lágu 10 sjúkl. í Bæjarspitalanum vegna men- ingitis purulenta. Þar af 7 á tímabilinu júní—sept. Ekki er hægt að segja um, hve þessi meningitis serosa faraldur hefur farið víða, en nokkuð mun liafa borið á svip- uðum kvilla í nágrenni Revkja- víkur og jafnvel víðar á land- inu. Ekki er hægt að komast að endanlegri niðurstöðu um or- sakir þessa faraldurs án veiru- rannsókna. Engar bakteríur fundiist í mænuvökvanum við ræktun eða smásjárskoðun og er ör- uggt, að þetta hefur ekki verið meningitis purulenta eða tub. Útilokað er, að þetta hafi verið meningitis secundaria. Þeir sjúkdómar, sem honum valda, eru vfirleitt auðþekktir, og fylgikvilli þeirra er miklu oftar encephalitis en hreinn meningitis. Enginn faraldur af morbilli, rubeolae eða vari- cella gekk í Reykjavik á síðast- liðnu ári. Þess má geta að einn sjúkl- inganna fékk rubeola ein- kenni á fjórða degi veikind- anna. Þá voru meningitis ein- kennin að miklu leyli horfin og liiti hafði lækkað úr 3Í),6° fyrsta daginn niður fvrir 38° C. Er sennilegast, að sá sjúkl- ingur hafi haft tvo sjúkdóma nærri samtímis. Mjög ólíklegt er, að hettu- sóttarveirur hafi verið hér að verki. Enginn sjúklinganna hafði hettusóttareinkenni. Eng- in hettusótt gekk í Reykjavík á þessum tíma, og að m. k. 13 sjúklinganna höfðu fengið heltusótt fyrr á ævinni. Allar likur benda því til, að hér liafi verið á ferðinni far- aldur af meningitis serosa pi i- maria. Útilokað er, að þetta liafi verið mænusótt. Enginn sjúkl- inganna fékk lamanir, vöðva- eymsli eða reflextruflanir, og slíkt væri óhugsandi í svo stór- um mænusóttarfaraldri. Fleira var ólíkt mænusótt í þessum faraldri. T. d. voru ein hjón meðal sjúklinganna, og for- eldrar eins drengsins veiktust bæði, skömmu á eftir honum. Slikt er sjaldgæft um mænu- sótt. A árinu 1956 komu 5 mænu- sóttarsjúkl. í Bæjarspitalann. Þeir veiktust allir í október, lömuðust allir mikið og einn þeirra lézt. Mænusóttarveirur fundust i þeim öilum, en ekki í neinum sjúklinganna með meningitis serosa. Enda þótt coxsackie sjúk- dómar svo sem lierpangina og pleurodynia hafi fundizt í Reykjavík á þessum tíma, þarf ekki að vera neitt samband

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.