Læknablaðið - 01.03.1962, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ
5
Þrjár sullblöðrur, ein sprengd.
væntanlega að liafa góð gróðr-
arskilyrði þar, liggjandi í þykk-
um vöðvum, og geta komið í
slað þess liluta af mjaðmar-
beininu, sem numinn væri
burtu. Eins og nú liorfir, að
með öllu er óvíst, að allir sullir
scu úr mjaðmarbeininu farnir
og jafnvel enn frekari líkur
fyrir því, að eitthvað sé eftir í
spjaldhrygg, og Jjegar tekið er
tillil til ])ess, hve litill gróðrar-
tendens var í biopsiusárinu, þá
þykir ekki vit að fara að standa
í beinflutningi að svo stöddu.
Ef svo befði tekizt til, að allt
skemmt bein væri farið og
þetta greri fljótt og vel og þá
vantaði nokkurn styrk i beinið
og sérstaklega í sacroiliaca lið-
inn, má taka til við það á nýj-
an leik. Lokað með girni i
vöðva og subcutis, silki í húð.
Keri.“
Sárið greri aldrei eftir að-
gerðina. Mikil ígerð kom í það,
og öðru hverju gengu úl sull-
ungar. Sýni af greftinum var
senl í ræktun, en ekkert óx frá
honum, enda fékk sjúklingur-
inn antibiotica. Öðru hverju
blæddi úr sárinu, stundum all-
verulega, og bafa þá væntan-
lega etizt sundur æðar, og
þurfti sjúklingurinn oft að fá
blóðgjafir. Ivonunni hrakaði
jafnl og þétt, og aðfaranótt 10.
okt. fékk liún enn eina blæð-
ingu, og var sú mest og dró
hana til dauða.
Sjúklingurinn var krufinn
10. okt. í Rannsóknastofu Há-