Læknablaðið - 01.03.1962, Side 71
LÆKNABLAÐIÐ
35
ingur milli L.R. og heilbrigðis-
málastjórnarinnar um skyldu
lækna við Landspítalann til þess
að annast kennslu við Hjúkrun-
arkvennaskólann. Mál þetta var
lagt fyrir launalaganefnd, og féll
úrskurður í október s.l. á þá
leið, að kennsluskylda bvíldi
ekki á læknunum, og er kennsla
þessi nú greidd á þann hátt, sem
stjórn L.R. óskaði eftir.
Á árinu 1957 reis ágreiningur
um þá vísitölu, sem vera skyldi
á púllíugreiðslur. Var málið lagt
í gerðardóm, og var þar sættar-
gerð í desember s.l. með þeim
hætti, að S.R. skyldi greiða L.R.
55 þús. kr., bundið því skilyrði,
að 30 þús. rynnu í ekknasjóð,
en 25 þús. til mannúðarstarf-
semi. Ákvað stjórn og með-
stjórn, að það fé skyldi gefið
Blindrafélaginu til liúsbygginga
við Stakkahlið. Og befur gjöfin
verið afbent. S.R. greiddi allan
kostnað við störf gerðardóms-
ins.
Alþingi var send fundarsam-
þykkt frá 17. febrúar, þar sem
þvi var mótmælt, sem fram kom
í frumvarpi til laga um efna-
hagsmál, að læknisþjónusta
skyldi metin þýðingarminni
fyrir fólkið í landinu en akstur
í leigubifreiðum.
Fyrir tilmæli L.R. og L.í. flutti
Alfreð Gislason breytingartil-
lögu við frumvarp i efri deild
Alþingis þess efnis, að læknar
og leigubílstjórar skyldu hljóta
bíla með sama verði. Tillaga
þessi var felld. 9 atkv. voru með,
en 10 á móti. Það má til tíð-
inda teljast, að læknir greiddi
atkvæði á móti tillögunni.
Heilbrigðismálaráðherra var
send álitsgerð um nýja reglu-
gerð um sérfræðingaleyfi, sem
læknadeild Háskólans og fyrr-
verandi landlæknir höfðu geng-
ið frá.
Samin hefur verið álitsgerð
um lagafrumvarp það, er nú
liggur fyrir Alþingi um náms-
kandídata.
Samin hefur verið álitsgcrð
um krabbavarnir fvrir formann
heilbrigðis- og félagsmálanefnd-
ar neðri deildar Alþingis, og
álitsgerð þessari fylgir greinar-
gerð ineð þingsályktunartillögu
um varnir, sem flutt var í dag
í sameinuðu Alþingi með stuðn-
ingi allra stjórnmálaflokka.
Félagið átti 50 ára afmæli 18.
okt. 1959. I tilefni þess efndi
stjórn félagsins til blaðamanna-
fundar 6. nóv., en afmælis-
bóf var lialdið 27. febrúar s.l.
i Framsóknarhúsinu.
Ákveðin er sú breyting á
Læknablaðinu, að það komi út
ársfjórðungslega, 48 bls. livert
hefti, eða 192 bls á ári; var áð-
ur 160 síður. Gert er ráð fyrir,
að skrifstofan taki að sér rekst-
ur blaðsins, þ. e. dreifingu,
geymslu, söfnun auglýsinga og
reikningshald.
Símaskrá L.R., þriðja úlgáfa,
er fullprentuð, og verður send
félagsmönnum í næstu viku.