Læknablaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 81
LÆKNABLAÐIÐ
43
-J\riitín Jlóniclátlir:
Tíðni berklasjúklinga
á lrflæknisdeild
Á siðastliðnum 18 árum hef-
ur sýkingartala berkla hér á
landi fallið úr 3.7% niður í
0.4%, og er þessi sýkingartala
hin lægsta, sem kunnugt er um.
Þar sem herklayfirlit okkar er
mjög nákvæmt, er næsta fátitt,
að það nái ekki til þeirra, sem
sýkjast í fyrsta sinn eða veikj-
ast að nýju, áður en þeir finn-
ast annars staðar. Þó munu ár-
lega vera greindir nokkrir nýir
berklasjúklingar á spitaladeild-
um, og verður 'hér á eftir sagt
frá reynslu Borgarspítalans í
þessu efni.
Á þeim rúmum 6 árum, sem
spítalinn hefur starfað, eru
skráðir 3520 sjúklingar, og eru
meðal þeirra 19, sem haldnir
voru virkum berklum,er berkla-
eftirlitinu var ekki kunnugt um.
Nokkrir þessara sjúklinga voru
þó undir eftirliti Berklavarnar-
stöðvar Reykjavikur vegna vitn-
eskju um gamla berklasýkingu
eða samskipti við smitbera. Ald-
ur þessara sjúklinga var frá 2
til 72 ára. Eftir sjúkdómsmvnd
skiptast þeir á eftirfarandi hátt:
Tub. pulm..............7
Pleuritis tub..........2
Hilitis tub............3
Meningitis tub.......4
Salpingitis tub...2
Tub. renum ....... 1
Tuberculosis pulmonum:
1) 35 ára karlmaður var
lagður inn vegna lystarleysis og
óþæginda frá meltingarfærum;
liafði oft verið á berklahælum,
en verið talinn frískur undan-
farin 3 ár. Berklasýklar fundust
í hráka við smásjárskoðun.
2) 45 ára karlmaður var
lagður inn vegna gruns um
magasár; hafði áður verið á
berklahælum, en ekki talinn
hafa virka berkla undanfarið ár.
Berklasýklar ræktuðust úr
hráka. Auk þess reyndist sjúkl-
ingurinn hafa krabbamein i
lunga. Magamyndir voru eðli-
legar.
3) 40 ára karhnaður var
lagður inn til rannsóknar vegna
þurraliósta, hæsi,mæði og megr-
unar. Lungnamyndir sýndu
þétta, dreifða smábletti um bæði
lungu, sem taldir voru likjasl
krabbameinsútsæði eða sarco-
idosis. Mantoux-próf (1:1000)
hafði verið gert rétt áður en
sjúldingurinn kom á spítalann,
og var það neikvætt, en berkla-
sýklar ræktuðust úr hráka. Lít-
ils háttar gastritis sást á maga-