Læknablaðið - 01.02.1967, Page 39
LÆKNABLAÐIÐ
9
Á fundi L. R. í nóvembermán-
uði síðastliðnum var álit nefndar
um framtíðarskipulag læknisþjón-
ustu á sjúkrahúsum tekið til um-
ræðu. Það voru tilmæli margra
fundarmanna, að nefndarálitið
yrði prentað, og birtist þar hér í
heild.
NEFNDARÁLIT UM FRAMTÍÐAR-
SKIPULAG
SPÍTALALÆKNISÞJÓNU STUNNAR
I. INNGANGUR
1. Tildrög til nefndarskipunar.
Nefnd þessi var .skipuð af stjórn Læknafélags Reykjavíkur haustið
1964. Tilefnið var vaxandi óánægja lækna og þá sérstaklega yngri
sérfræðinga með fyrirkomulag spítalalæknisþjónustunnar og starfs-
aðstöðu alla á spítölum vorum, og var nefndinni ætlað að kynna sér
ástæður fyrir þessu og gera tillögur til úrbóta.
í nefndina voru skipaðir Guðjón Lárusson, Jón Þorsteiasson og
Ólafur Jensson.
2. Starfstilhögun nefndarinnar.
Nefndin hefur unnið sleitulaust allan þennan tíma og lengst af haldið
fundi vikulega. Störfum nefndarinnar má skipta í tvennt: gagnasöfnun
og kynningarstarf.
A. Gagnasöfnun.
1. Upplýsingar um starfstilhögun á íslenzkum spítölum eru frá
nefndarmönnum sjálfum, .sem telja sig vel kunnuga þeim málum, eftir
ailiangt starf á þeim.
Þá hefur nefndin rætt formlega og óformlega við fjölda spítala-
lækna og kynnt sér skoðanir þeirra; enn fremur hefur hún rætt við
sérfræðinga, sem hafa ekki spítalaaðstöðu, og telur sig ekki síður hafa
haft gagn af þeim viðræðum.
2. Upplýsingar um erlenda spítala eru einnig frá nefndarmönn-
unum sjálfum, sem hafa starfað á spítölum á Norðurlöndum, í Eng-
landi og í Bandaríkjum N.-Ameríku, og af viðtölum við íslenzka starfs-
bræður, sem starfað hafa í þessum löndum og í Þýzkalandi.
Nefndin hefur rætt við erlenda lækna og fengið frá þeim mikil-
vægar upplýsingar.
Þá hefur nefndin fengið skriflegar upplýsingar frá erlendum lækn-