Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1967, Page 42

Læknablaðið - 01.02.1967, Page 42
12 LÆKNABLAÐIÐ Góð vinnuaðstaða er nauðsynleg til þess, að læknar á spítala geti stundað vinnu sína, svo að vel sé og þekking þeirra komi að íullum notum. Um sumt, er þetta varðar, þurfa læknar að sækja undir þá aðila, er reka spítalana, og er þar m. a. um að ræða kaup á tækjum, vinnurými og fleira, sem nefndin mun ekki ræða frekar. Annað ætti algjörlega að vera á valdi læknanna .sjálfra, og er þar helzt réttur þeirra og möguleiki (og oft jaínvel skylda) til að leita ráða og samvinnu starfsbræðra sinna í sömu sárgrein og óskyldum greinum. E. t. v. hefur fátt staðið opinberum spítölum hér eins rnikið fyrir þrifum og skortur á slíkri samvinnu (konsultationum). Bera yíir- læknar spítalanna þar aðalábyrgð. Á einkaspítölum hér hefur hins vegar verið miklu betri möguleiki til .samvinnu, enda ber hver læknir þar ábyrgð á sínum sjúklingi. Vitanlega hefur orðið misbrestur á þess- um spítölum líka, en tækifærið hefur verið fyrir hendi. Skv. skoðun nefndarinnar og „Minimal Standard" verður hver spítali að geta gegnt þeirri þjónustu, sem hann tekur að sér. Deildar- skiptur spítali, er hefur t. d. lyflæknisdeild, verður þannig að hafa starfandi þar eða ráðgefandi lækni í hverri þeirri undirsérgrein, sem til er, .svo fremi sem slíkur læknir er til í landinu. Þannig getur, hvenær sem er, þurft að leita ráða sérfræðinga í taugasjúkdómum, blóðmeina- fræði, hjartasjúkdómum o. s. frv., enda þótt sjúklingurinn hafi, þegar hann kom á spitalann, verið talinn þjást af kvilla, er eigi heyrir undir þessar sérgreinar. Þá vísar nsfndin til Platt Committee 1961 (Medical Staifing Structure in the Hospital Service), en þar er talið nauðsynlegc, að a. m. k. tveir sérfræðingar í sömu sérgrein starfi við hvert .sjúkrahús eða deild, þannig að spítalinn geti alltaf veitt þá sérfræðiþjónustu. enda þótt annar þeirra sé fjarverandi af einhverjum ástæðum. Nefndin hefur þegar lýst ábyrgð á hendur íslenzkum yfirlæknum fyrir það að hafa ekki sáð um að tryggja spítölunum næga sérfræðiþjónustu. Hún vill líka benda á, að þar sem sérfræðingar í undirgreinum eru starf- andi við spítala, er venjulega eingöngu um einn að ræða í hverri grein, og er spítalinn því án þeirrar læknisþjónustu ákveðinn tíma á hverju ári, t. d. vegna sumarleyfa. Verður vikið að því síðar. 1 Nefndin telur, að sjúklingurinn eigi kröfu á beztu læknisþjónustu, sem völ er á; ekki þeirri, sem einhver einstakur heimilislæknir, yfir- læknir eða sérfræðingur veit bezta, heldur þeirri, er læknisfræðin í dag veit bezta. Það er því skylda hvers læknis að útvega sjúklingi sínum þá læknisfræðikunnáttu, sem þarf til að leysa vandamál hans. og gildir þá einu, hvort sækja verður þann sérfræðing út fyrir veggi spítalans og jafnvel á aðra spítala. Slík þjónusta verður ekki veitt nema með hópsamvinnu (team-work), ef vel á að vera. Ekki er hægt að skilja við þetta mál án þess að benda á, að ákveðið tryggingafélag, S. R., setti læknastéttinni afarkosti á sínum tíma og krafðist þess í samningum, að aðeins einum lækni væri greitt fyrir stundun sjúklings í hverri legu. Má telja læknasamtökunum til vanza að láta á þeim tíma þá, er sízt höfðu skilning á, fá með peningavaldi tækifæri til að vinna gegn samvinnu lækna og hags- munum sjúklinganna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.