Læknablaðið - 01.02.1967, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ
35
TILLÖGUR
Lágmarksskilyrði fyrir viðurkenningu á sjúkrahúsum, sem
veita sérfræðiþjónustu (lágmarksstaðall)*
GRUNDVALLARSKILYRÐI
I. Stjórnsýsla.
A. Sjúkrahússtjórn: Sérstök stjórn verður að vera, sem ber ábyrgð
á rekstri sjúkrahússins sem stofnunar.
B. Sjúkrahúsið: Það verður að vera þannig skipulagt, byggt og
útbúið, að öryggi sjúklinganna sé tryggt og skilyrði ,séu fyrir
hendi til sjúkdómsgreiningar og meðferðar, sem svari kröfum
tímans og þörfum þjóðfélagsins.
C. Þessi þjónusta er nauðsynleg:
1. Fullkomið eldhús.
2. Sjúkraskrár.
3. Lyfjabúr.
4. Rannsóknarstofur í meina- og meinefnafræði.
5. Röntgen.
6. Neyðarþjónusta.
7. Læknisfræðilegt bókasafn.
8. Ritarar og sérhæft aðstoðarfólk.
D. Æskileg þjónusta:
1. Eftirskoðun sjúklinga.
2. Orkulækningar.
3. Félagsráðgjafar.
II. Lœknalið.
Læknalið verður að vera skipulagt í sérstöku læknaráði, sem ber
ábyrgð gagnvart sjúklingunum og stjórnarnefndinni á allri læknis-
þjónustu sjúkrahússins, um leið og það ber siðferðilega (ethiska)
og faglega (professionala) ábyrgð á öllum starfandi læknum
sjúkrahússins.
III. Hjúkrun.
Séð skal fyrir fullnægjandi hjúkrun allan sólarhringinn, og útlærð
hjúkrunarkona skal alltaf vera í hverri hjúkrunareiningu.
FRAMKVÆMDAREGLUR
I. Stjórnsýsla.
A. Sjúkrahússtjórnin: Hún ber ábyrgð á rekstri sjúkrahússins. Það
er skylda hennar að fela starfandi læknum sjúkrahússins alla
ábyrgð á læknisþjónustu þess.
* Eins og sjá má af „Minimal Standard“, er yfirlæknir ekki talinn
með, þar sem rætt er um læknalið sjúkrahússins, heldur í þeim kafla,
er fjallar um stjórnsýslu.