Læknablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 44
168
LÆKNABLAÐIÐ
III. Samloðunarpróf með gervikornum, sem hjúpuð eru gamma-
glóbúlíni frá mönnum:
a) Latexpróf, b) Acrylfixationspróf (AFT), c) Bentonitpróf
(BFT), d) kvarzflokkulationspróf, e) Mastixpróf.
Þau próf, sem niest eru notuð, eru Bose-Waaler próf ásamt
Latex-, Aci-ylfixations- eða Bentonitprófi. Ýmis afbrigði þekkjast
af Bose-Waaler prófi, og nefnast þau „sensitized sheep cell
agglutinations test“ og einnig „tanned sheep cell agglutinations
test“.
Rose-Waaler próf er venjulega gert með eftirfarandi hætti:
Rauð kindablóðkorn eru gerð næm með mótefnablóðvatni frá
kanínum, en gammaglóbúlín þess tengist við yfirborð rauðu blóð-
kornanna og afbakast (denaturerast) um leið með nokkrum hætti.
Þannig verða kindablóðkörn hjúpuð afbökuðu gammaglóbúlíni.
Þessnm blóðkornum er síðan blandað í ákveðna þynningaröð af
blóðvatni sjúklings. Ef giktarþáttur er í blóðvatninu, binzt hann
glóbúhninu á yfirborði rauðu blóðkornanna og tengir þau saman,
þannig að flygsur myndast, sem falla til botns (agglutination).
Niðurstaða þynningarprófs er skráð í þynningar-einingum (titer),
en það er liæsla blóðvatnsþynning, sem gefur greinilega samloðun.
Við Latex-prófið er notuð Colloidlausn af Latex-kornum, sem
hjúpuð liafa verið eðlilegu manna-gammaglóbúlíni (7S). Dropa
af þessari lausn er blandað saman við dropa af blóðvatni sjúldings.
Sé um giktarþátt að ræða, tengist hann gammaglóbúlíninu á yfir-
borði Latex-kornanna; þau hópast saman og mynda grófar flygsur
á glerinu.
Próf þetta er fyrst og fremst tegundarpróf (qualitativt), það
sýnir, hvort giktarþáttur sé í blóðvatni, en felur ekki í sér magn-
mælingu eins og Rose-Waaler prófið gerir.
Giktarþáttnr er samsett efni, og er talið, að um fleiri en eina
tegund sé að ræða. Tekizt hefur að greina hann í tvo þætti, sem
nefndír hafa verið „þáttur eitt“ og „þáttur tvö“. Alitið er, að
„þáttur eitt“ tengist bæði dýra- og manna-glóbúlíni, en „þáttur
tvö“ aðeins manna-glóbúlíni. Sumir höfundar álíta, að „þáttur
tvö“ sé síður einkennandi fyrir liðagikt (Arthritis Rheumatoides)
og hann finnist við ýmsa aðra sjúkdóma en gikt og einnig hjá
heilbrigðum. Ef þessi kenning er rétt, má gera ráð fyrir fleiri
röngum jákvæðum prófum með Latex-aðfcrðinni en með Rose-
Waaler rannsókn. Þeir sjúklingar, sem hafa „þátt eitt“, ættu að
vera jákvæðir bæði við Rose-Waaler og Latex-próf.
Þær aðferðir, sem notaðar eru til að finna giktarþátt í blóð-