Læknablaðið - 01.10.1969, Síða 69
LÆKNABLAÐIÐ
183
Jón Þorsteinsson:
HORFUR OG MEÐFERÐ
Tilgangurinn með faraldsfræðilegum rannsóknum á arthritis
rheumatoides er í fyrsta lagi að meta tíðni, í öðru lagi að reyna
að upplýsa eitthvað um orsakir og í þriðja lagi að reyna að ráða
hot á sjúkdómnum. Svo mætti bæta því við, að æskilegt væri að
reyna að gera sér betur grein fyrir eðlilegum gangi sjúkdómsins
og horfum. Þær hafa alltaf verið taldar alvarlegar.
Því miður liggja ekki fyrir nægilega öruggar heimildir um
þetta, þar eð einvörðungu hefur verið stuðzt við sjúklinga, vistaða
á sjúkrahúsum. Eftirrannsóknir á þessum sjúklingum hafa yfir-
leitt sýnt, að um 50% þeirra heldur áfram að versna við vanafasta
meðferð (Short og Ragan), en sýnt hefur verið fram á mun hetri
árangur, ef meðferð er hafin nógu snenuna (Duthie).
Kappkosta ber að hefja meðferð, áður en sjúklingarnir eru
komnir með einkenni, sem vitað er, að hafi í för með sér alvar-
legar horfur. Þessi einkenni eru: Mikil blóðvatnsþynning í giktar-
þætti, blóðleysi, stöðug sökkhækkun, miklar röntgen-breytingar,
giktarhnútar og fleiri einkenni utan liða. Gera verður áætlun um
langtímameðferð og fylgja henni eftir. Tilgangur meðferðar er:
1) að halda í skefjum l)ólgu, verkjum og almennum sjúkdóms-
einkennum; 2) að koma í veg fyrir bæklun og viðhalda starfs-
hæfni.
Grundvallarmeðferðin er fólgin í hvíld, stuðningi við liði með
spelkum og umhúðum, æfingum, lækningu á blóðleysi og salicyl-
meðferð. Eins og áður segir, á að hefja meðferð sem fyi-st og
helzt á sjúkrahúsi. Nægileg hvíld er aðalatriðið. Menn greinir á
um, hversu ströng legan eigi að vera. Flestir munu vilja hreyfa
sjúka liði daglega og æfa, en Skotar hafa sýnt fram á, að hezt sé
að hvíla algjörlega hólgna liði í spelkum í þrjár til fjórar vikur
og æfa þá svo, þegar hólgan er runnin.
Lækning á hlóðleysi, sem fylgir oftast virkri liðagikt, er nauð-
svnleg. Járninntaka er tilgangslaus, en járngjöf í æð gefst vel.
Salicylmeðferð hefur staðizt alla raun og nýtur nú meiri virð-
ingar en nokkru sinni. Salicylötin eru bæði verkjastillandi og
hólgueyðandi og hafa þar með yfirburði hæði yfir Butazolidin og
Indomethacin.