Læknablaðið - 01.10.1969, Qupperneq 73
LÆKNABLAÐIÐ
187
Það skiptir litlu máli, en almennt ber að nota einfaldar aðferðir.
Heitar umbúðir, t. d. þær, sem innihalda siliconagnir, eru einföld
og hagkvæm aðferð; einnig hiti frá infrarauðum lampa. Þá eru
heit parafínhöð hagkvæm, gefa góðan iiita á hendur og fætur, en
eru fyrirhafnarsöm.
Æfingameðferðin skiptir meira máli, og er lienni beitt til að
varna skerðingu á hreyfingu í lið og til að vinna á móti rýrnun
vöðva. Það er alkunna, að erfitt er að útrýnia kreppu eða aflögun
á lið, sem hefur náð að festast. Auðveldara er að koma í veg
fyrir slíkt. Vilað er, að liður, sem hrevfður er geg'num allan hreyfi-
feril sinn nokkrum sinnum á dag, kreppist ekki né stirðnar. Mikil
virkni í liðbólgu og sársauki við hreyfingu geta valdið þvi, að
hreyfing er ógerleg og/eða ekki æskileg, og verður að meta hverju
sinni, hvort gera skal, hvíla eða hreyfa.
Vöðvarýrnun og meðfylgjandi tap á afli vöðva er eitt einkenni
liðagiktar, en rýrnun er oft meiri en telja má, að svari til virkni
sjúkdómsins. Hvort heldur sem um er að ræða vöðvarýrnun, sem
teljast má eðlileg vegna sjúkdómsins, eða í’ýrnun vegna notkunar-
leysis, geta æfingar unnið gegn þeirri framvindu.
Æfingar eru ýmist aðfengnar (passiv); gerðar af sjúkraþjálf-
ara og án liðsinnis sjúkhngs, eða gerðar af sjúklingi sjálfum
(aktiv). Ef vinna þarf upp afl í vöðva, þarf vöðvinn að erfiða,
og er því settur á hann þungi eða mótstaða. Auk þessa eru aðrar
tegundir æfinga, sem tími levfir ekki að lýsa nánar.
Eins og nefnt var, þarf að venja sjúkling með liðagikt á bvrj-
unarstigi við ævilanga dagskrá meðferðar. Hann verður að læra
að nota 'hita í áhataskvni gegn verkjum og sársauka. Hann þarf
að læra æfingadagskrá, sem verður hluti af daglegum venjum.
Þá ]>arf sjúklingurinn að kunna að viðhalda fullum hreyfiferli
liða og halda vöðvaafli eins óskertu og unnt er. Hann vei'ður
einnig að vita, hvenær hvíla her liði fremur en hreyfa, þegar
liðhólga er virk. Til mála kemur stundum að kenna einhverjum
í fjölskvldunni og lireyfa liði sjúklingsins, þegar sjúkdómsástand
gerir slíkt nauðsynlegt.
Þegar liðagiktarsjúklingur hefur hlotið nægilega þjálfun í
æfingum, verður að trevsta honum til að halda áfram á eigin
spýtur heima. 1 langvinnum sjúkdómi sem ]>essum er allsendis
ógerlegt og afar óhagkvæmt að láta sjúkling koma á æfingastöð
daglega, mánuðum eða árum saman. Hins vegar þarf að endur-
meta ástand hans m. t. t. æfinga og e. t. v. láta hann koma í æf-
ingarmeðferð við og við undir eftirliti.