Læknablaðið - 01.04.1970, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ
L/EKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson.
Meðritstjórar: Karl Strand og Þorkell Jóhannesson (L.Í.),
Ásmundur Brekkan og Sœvar Halldórsson (L.R.)
56. ÁRG. APRÍL 1970 2. HEFTI
Sverrir Haraldsson
RETROPERITONEAL FIBROSIS *
Onnond lýsir árið 1948 í fyrsta sinn sjúkdómi, sem síðar hefur
oftast verið nefndur idiopat. retro-peritoneal fibrosis (I.R.F.) eða
hara retro-peritoneal fibrosis (R.F. ).1!’ Mun síðan hafa verið skýrt
frá u.þ.h. 250 tilfellum. Nokkuð vafasamt má þó telja, að öll heyri
undir þessa sjúkdómsmynd (syndrom), þar sem vefjagreining er
ekki í öllum tilfellum fyrir hendi og þótt greining sé byggð á
„klassískri“ sjúkdómsmynd, eru orsakir enn að nokkru leyti óút-
skýrðar.
1 þessari grein er skýrt frá sjúklingi, sem talinn var hafa ofan-
greindan sjúkdóm, en tíu mánuðum eftir þá greiningu lézt sjúkl-
ingurinn úr illkynja texli í maga. Skýrt er frá líffærameinafræði,
sjúkdómsmynd og méðferð þessa sjúkdóms í ljósi þess, sem fram
kom hjá þessum sjúklingi. Nánar eru ræddar tilgátur um orsakir
þessa ástands.
* Samnefni: Ormond’s syndrom peri-ureteritis plastica,
peri-ureteritis obliterans, perirenal fascitis,
peri-ureteral lymphangitis eða lipo-sclerosis,
retro-peritoneal adipo-necrosis.
Urol. klin. Central Las., Vasterás, Svíþjóð.
(Yfirlæknir: Med. dr. Rolf Pompeius).