Læknablaðið - 01.04.1970, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ
57
Víkingur H. Arnórsson
KJARAMÁL ÍSLENZKRA SJÚKRAHÚS-
LÆKNA SlÐASTLIÐIN 25 ÁR
Merkur áfangi í launa- og kjaramálum íslenzkra lækna náðist
árið 1966, þegar Læknafélag Reykjavíkur gerði samninga við ríki og
Reykjavíkurborg um laun sjúkrahúslækna. í framhaldi af því lýstu
sömu aðilar yfir vilja sínum til að verða við ýmsum kröfum lækna,
s. s. um bætta starfsaðstöðu og endurskipulagningu læknisþjónustu
á sjúkrahúsum.
Með samningi þessum klufu læknar sig út úr kjarasamningum
opinberra starfsmanna — Læknafélag Reykjavíkur var nú viður-
kenndur samningsaðili um laun þeirra. Aðdragandi þessa var all-
langur, og málalyktir náðust ekki fyrr en eftir mikil átök.
Skal nú stiklað á því helzta, sem gerzt hefur í kjarabaráttu
læknasamtakanna bæði fyrir og eftir þessi merku tímamót.
Launalög Alþingi samþykkti launalög fyrir opinbera starfsmenn
árið 1945 árið 1945 og ný launalög árið 1955, og eftir þeim unnu
sjúkrahúslæknar, þar til lögin um Kjaradóm voru sett 1962.
Læknakandídatar komu þó ekki á launalögin fyrr en 1959. Mestan
hluta þessa tímabils fengu læknar engar greiðslur fyrir vaktir og yfir-
vinnu, og þar sem launin rýrnuðu sífellt vegna hækkandi verðlags,
urðu þeir að leggja hart að sér við vinnu utan sjúkrahúsanna til að
hafa viðunandi lífskjör.
Uppsagnir 31 læknir sagði upp störfum sínum við heilbrigðis-
sjúkrahúslækna stofnanir ríkis og Reykjavíkurborgar frá og með
1962 1. ágúst 1962 vegna óviðunandi launakjara. Ríkis-
stjórnin framlengdi með lögþvingan uppsagnartím-
ann til 1. nóv., en þá lögðu læknarnir niður vinnu. Um hálfum mán-
uði síðar tóku þeir tilboði heilbrigðismálaráðherra um, að þeim skyldu
greidd þau laun, sem um kynni að semjast milli Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og ríkisstjórnarinnar eða úrskurðuð af Kjara-
dómi frá þeim degi, sem þeir höfðu sagt upp störfum sínum, eða 1.
ágúst 1962 og til þess tíma, sem úrskurður Kjaradóms tæki gildi, eða
1. júlí 1963.
Lög um Árið 1962 voru sett lög um kjarasamninga opinberra
Kjaradóm starfsmanna. Samkvæmt þessum lögum á kjararáð BSRB
(skipað 5 mönnum völdum af bandalagsstjórninni) að
fara með fyrirsvar ríkisstarfsmanna um kjarasamninga við fjármála-
ráðherra eða sérstaka samninganefnd skipaða af honum. Náist ekki