Læknablaðið - 01.10.1970, Blaðsíða 37
VIÐ SYKINGU I DNDUNARVEGI
Sýklalyf með mikilli og víðtækri bakteríudrepandi verkun.
PENBRITIN hefur framúrskarandi verkun gegn flestum bakteríum, sem
valda ígerð og bólgum í öndunarvegi. í þessu sambandi má benda á, að
PENBRITIN hefur sérstaklega áberandi verkun á H. Influenzae, sem oft er
einna örðugast að útrýma við ígerðir í öndunarvegi. PENBRITIN reyndist
verka bezt á H. Influenzae af 8 sýklalyfjum, sem notuð voru í þessa tilraun.1)
Við tilraunina voru notaðir 100 stofnar af H. Influenzae.
PENBRITIN hefur bakteríudrepandi verkun, en það er einkum mikilvægt
fyrir gamalt fólk og börn, sem öðrum fremur eru næm fyrir ígerðum í önd-
unarvegi.
PENBRITIN er penicillínafbrigði. Gjöf lyfsins má þess vegna haga eftir
því, hve alvarlegur sjúkdómurinn er, án þess að hætta á aukaverkunum auk-
ist að sama skapi. Oftast er hægt að lækna eða koma í veg fyrir ígerðir
í öndunarvegi með venjulegum skömmtum af lyfinu, þ.e.a.s. 250—500 mgx4
á dag. Eftir slíka skammta er magn lyfsins í blóði vel umfram það magn,
sem heftir vöxt næmra baktería.
1) Khan, W., Ross, S., Zarembo, A. E.: Antimicrobial Agents and Chemotherapy (1966),
p. 393.
Umboðsmaður er G. Olafsson hf., Aðalstræti 4, Reykjavík,
sem veitir allar frekari upplýsingar.