Læknablaðið - 01.10.1970, Blaðsíða 52
160
LÆKNABLAÐIÐ
gula blettinum. Miklar blæðingar benda til hraðfara aukningar
á staspapillunum. Blæðingar framan við sjónhimnu sjást helzt
samfara blæðingum undir arachnoidea. Seinna koma útferðir
(exudöt) á papilluna og í macula. Utferðin myndar stundum
stjörnu í macula, en slíkt er þó algengara við retinopathia
hypertonica. Yfirleitt líða vikur eða mánuðir, þar til staspapillur
hafa myndazt að nokkru ráði. Þrotinn (protusionin) nær í flest-
um tilfellum 1—4 díoptríum (díoptrí u.þ.b. 1/3 mm), en getur
orðið 8—9 D í hinum verri tilfellum.
Vandalaust er fyrir augnlækni að greina staspapillur á háu
stigi, þegar vefurinn bólgnar nokkrar D inn í augað; hláæðarnar
eru dökkar og þrútnar og jafnvel komnar blæðingar í papillurnar
og nánasta umhverfi þein-a.
Hér er rétt að minna á þau sannindi, að staspapillur koma
fremur seint fram við heilaæxli. Auðsætt er því, að augnlæknar
þurfa að gjörþekkja hin fvrstu einkenni og láta ekki undir höfuð
leggjast að skoða á ný sjúkling við minnsta grun um slík ein-
kenni í uppsiglingu og koma honum í umfangsmeiri rannsókn en
þá, sem heyrir nndir sérsvið þeirra. Mikilvægt er að huga vel að
bláæðunum í sjónhimnu við grun um byrjandi stíflu (stasis).
Útvíkkun á þeim er oft fyrsta einkennið um staspapillur í aðsigi.
Einkenni: Staspapillur hafa út af fyrir sig sialdan í för með
sér nein tiltakanleg óþægindi fyrir sjúklinginn. Hann verður e.t.v.
var sjóntruflana eða blindu, sem er svo skammvinn, að ekki
er frá henni sagt né munað, nema sérstaklega sé eftir innt. Starfs-
truflunin er Jjannig óveruleg við staspapillur sem slíkar, og skiptir
þessi staðreynd miklu máli við greiningu á þeim sióntaugasiúk-
dómum, sem valda tilfinnanlegum starfrænum truflunum (sión-
skerðingu) þegai* á byrjunarstigi, en koma að öðm leyti fyrir
sjónir eins og „ósviknar“ staspapillur.
GREINING
Það, sem mætir auga athugandans, þegar skoðaðar eru stas-
papillur, er staði)undinn bjúgur í sióntaugarendanum(-endunum).
Orsökin er, eins og fyrr segir, fyrirferðaraukning og hækkaður
þrýstingur í heilabúinu. Sams konar eða svipuð mynd blasir við
af ýmsum öðrum orsökiun. Þar skal helzt telia: Biúgur (papilöd-
ein) vegna almennra lyflæknisfræðilegra siúkdóma eða stað-
bundins sjúkdómsástands í papillunum, pseudopapillitis, drusen-