Læknablaðið - 01.10.1970, Blaðsíða 22
146
LÆKNABLAÐIÐ
undir algengra sjúkdómstilfella, sem nauðsynlegt er að keima
læknanemum og læknum í framhaldsnámi að greina og annast.
Með of mikilli sérhæfingu mimdu stúdentar auk þess fá ranga
hugmynd um tíðni og tegundir helztu sjúkdóma í landinu.
10. Bókasafn
Gott bókasafn er nauðsynlegt við læknaskóla og kennslu-
sjúkrahús og verulegur lduti af því á að vera við sjúkrahúsið
til notkunar í starfi og námi. Helztu tímarit mundu þurfa að
vera til i a. m. k. tveimur eintökum, þ. e. a. s. hæði á bókasafni
slofnunarinnar og aðalbókasafni háskólans. 1 bókasafni var talið
nauðsynlegt að hafa nægilegan fjölda af sætum og vinnuaðstöðu
fyrir stúdenta. Bent var á, að byrja ætti að byggja bókasafn
fjórum til fimm árum á undan öðrum deildum nýrra háskóla.
11. Læknafjöldi
Allir voru sammála um, að ekki væri unnt að miða fjölda
lækna sjúkrahússins við fjölda sjúkrarúma. Frekar yrði að miða
læknafjöldann eftir þeirri starfsemi, sem fara ætti fram á sjúkra-
húsinu, og einnig væri að nokkru leyti hægt að styðjast við þann
tíma, sem læknarnir ættu að verja til kennslu- og vísindastarfa.
I umræðum um stærð og fjölda kennslusjúkrahúsa var bent
á, að það væri erfitt að ákvarða starfssvið læknanna og þær hyrð-
ar, sem kennslan legði þeim á herðar, væru ekki metnar að fullu,
nema hvað snertir formlega kennslu, þ, e. a. s. fyrirlestra og
svipað.
Allir voru sammála um, að kennsla og vísindalegar rannsókn-
ir mundu auka talsvert starf á deildum og gera mætti ráð fyrir
talsverðri aukningu læknaliðsins, þegar kennsla hæfist á sjúkra-
húsi, sem áður liefði ekki verið kennslusjúkrahús.
Hin mikla sundurgreining handlæknisfræði og lyflæknisfræði
í smærri greinar ki-efst sérstaklega góðrar stjórnar kennslunnar
í þessum greiniun.
Talið var, að þegar sjúkrahús yrði gert að kennslustofnun,
þyrfti að meðaltali að hæta við a. m. k. einiun lækni í hárri stöðu
á hverja deild (t. d. yfirlækni). Minnsti fjöldi lækna á hverri
deild kennslusjúkrahúss var talinn vera: Einn yfirlæknir, einn
sérfræðingur og einn læknir án fullra réttinda.
1 sambandi við þánn tíma, sem ætla mætti til kennslu, var
talið, að fyrir hvern fyrirlestur þyri'ti að ætla hverjum lækni
sex klukkustundir, þ, e, fimm klukkustundir til undirbúnings og