Læknablaðið - 01.10.1970, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
143
2. Stærð og fjöldi kennslusjúkrahúsa
Rúmafjöldi sjúkrahúsa nú á dögmn er siður mælikvarði á
starfsemi þeirra en áður var. Fjöldi sjúkrarúma, sem nauðsyn-
legur er til kennslu, fer að nokkru leyti eftir tilgangi kennsl-
umiar, þ. e. a. s. hvort lögð er aðaláherzla á hagnýta klíníska
menntun eða hvort lögð er aðaláherzla á teoretíska menntun og
vísindalegar rannsóknir.
Kennslusjúkrahús á helzt að vera stórt sjúkrahús, og það á
að hafa allar þær sérdeildir, sem kenna á stúdentunmn við. Ekki
var farið út í nánari endanlegar ákvarðanir gagnvart þessu, en
þó var talið, að íbúafjöldi þess landsvæðis, sem sjúkrahúsið þjón-
ar, hefði töluvert að segja um það, hvort ýmsar sérdeildir væru
nógu stórar til þess, að þær geti sinnt hlutverki sínu sem kennslu-
deildir í hlutaðeigandi grein. 1 Odense verður kennslusjúkrahús
með 1300 sjúkrarúmum, og íhúatala svæðisins, sem tilheyrir
sjúkrahúsinu, mun vera mn 250 þúsund.
Sjúkradeild með 90—100 rúmum mun geta amiazt kennslu
6—10 læknanema hverju sinni.
Notkun ýmissa hjálpartækja við kennsluna getur aukið
kennslumöguleika sjúkrahúsa, sem a. ö. 1. eru of lítil fyrir hlut-
verk sín.
Til framhaldsmenntunar lækna var talið nauðsynlegt að nota
fleiri en eitt sjúkrahús á hverjum stað, og var þá rniðað við þær
borgir á Norðurlöndum, sem hafa læknaskóla. Sjúkrahús þessi
mundu vinna saman að verkefninu, þar sem hvert þeirra mundi
ekki hafa nægilegt svið til þess að fullmennta sérfræðinga.
Til kennslu læknanema var talið heppilegast að hafa eina stóra
stofnun, sem hefði allar þær deildir, sem kennsla ætti að vera
við samkvæmt kennsluskrá háskólans. Talið var töluvert mikils-
vei’t, að hver stúdent hefði aðalaðsetur á einum stað, þar sem
hann kynni vel við sig og honum fyndist hann eiga heima og
stai'fsfólkið þekkti hann. Þó var talinn nokkur hagur í því að
liafa hluta af kennslunni á öðrum sjúkrahúsum. Þetta getur verið
nauðsynlegt, ef stúdentafjöldinn er of mikill eða einstakar sér-
deildir eru ekki á sjúkrahúsinu eða sjúklingahópurinn á deildun-
mn er ekki nægilega fjölbreyttur til almennrar kennslu.
Frá sjónarhóli almennrar læknisþjónustu á staðnum og heil-
brigðisþjónustu í landinu var það líka talinn vera kostur að fela
liina klínísku kennslu fleiri en einu sjúkrahúsi. Einnig var bent
á l'járhagslegar hliðar málsins og meðal annars á það, að taka yrði