Læknablaðið - 01.10.1970, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
145
greinar, geta bætt það að nokkru með því að hafa deildir i klín-
ískum grunngreinum, t. d. klíníska lífefnafræði, klíníska lífeðlis-
fræði og kliníska sýklafræði.
Bent var á, að fram til þessa hafi stærð byggingalóða og fjár-
hagsleg aðstaða verið alls ráðandi gagnvart því, hvort stofnanir
í grunngreinum væru staðsettar nálægt kennslusjúkrahúsum eða
ekki.
5. Matstofur
Matstofur eiga að vera sameiginlegar fyrir allt starfslið sjúlmi-
hússins og nemendur við það.
6. Svefnrúm fyrir læknanema
Ekki var talið nauðsynlegt, að læknanemar hefðust við á
sjúkrahúsinu um nætur, nema á þeim deildum, þar sem starf-
semin er í fullum gangi allan sólarhringinn, eins og t. d. við
fæðingardeildir.
7. Tilraunalækningar
Tilraunalækningar eru nauðsynlegar við sjúkrahús og þar
með dýrageymslur með áföstum skurðstofum og rannsóknastof-
um.
8. Göngudeildir
Göngudeildir eru nauðsynlegar, bæði vegna þjónustu siúkra-
hússins við sjúklinga, kennslu stúdenta og lækna og eftirrann-
sókna og vísindastarfa. Mikil áherzla var lö,«ð á nauðsvn þess, að
hægt væri að kenna stúdentum meðferð sjúklinga, sem ekki þyrftu
sjúkrahúsvist.
Talið var, að starfandi læknar utan siúkrahúsa gætu tekið
meiri þátt í kennslu en þeir nú gera og sérstaklega í sambandi
við kennslu í Télagslækningum. Þátttaka stúdentanna i klínískri
vinnu starfandi lækna utan siúkrahúsa — sérstaklega ef „praxís-
inn“ er vel skipulagður miðað við nútímalæknisþjónustu, — getur
orðið til þess að hafa áhrif á starfsval stúdentanna síðar.
9. Neyðarþjónusta
Neyðarþjónusta verður að vera á öllum kennslusiúkrahúsum,
þ. e. a. s. siúkrahúsið verður að vera opið allan sólarhringinn
fyrir hráð sjúkdómstilfelli. Slík þjónusta tryggir að nokkru, að
sjúkrahúsið verði ekki of sérhæft og útiloki þar með ýmsar teg-