Læknablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 26
2
LÆKNABLAÐIÐ
og Danmörku. Hann var ráðimi aðstoðarlæknir í Rannsóknastofu
Háskólans í meinafræði árið 1938 og starfaði þar til dauðadags.
Þórarinn var viðurkenndur sérfræðingur í meinafræði 1954,
en árið eftir fór hann utan til frekara framhaldsnáms og starfaði
um hálfs árs skeið á meinafræðistofnun Glasgow-háskóla, sem
D. F. Cappell prófessor veitti þá forstöðu. Þórarinn vann hylli
samstarfsmanna sinna í meinafræðistofnuninni í Glasgow sem og
annars staðar og eignaðist þar trausta vini. Einn þeirra, J. D.
Stephens, núverandi kennari við Edinborgar-háskóla, var rétt
ókominn hingað til lands í boði Þórarins, er hann svo snögglega
féll frá.
Jafnframt störfum í Rannsóknastofu Háskólans hafði Þórar-
inn Sveinsson opna lækningastofu í Reykjavík og gegndi lengst
af að nokkru almennum læknisstörfum. Frá árinu 1944 var hann
trúnaðarlæknir Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Hin síðustu ár gaf
Þórarinn sig eingöngu að rannsóknastörfum og hafði þá jafn-
framt á liendi meinafræðikennslu í tannlæknadeild Háskólans.
Eftir Þórarin liggja ritgerðir um meinafræðileg el'ni i Lækna-
blaðinu og viðar. Hann samdi yfirlit yfir 40 ára starfstímabil St.
Jósepsspítalans i Reykjavík 1902-1942. 1 skýrslu um Rannsókna-
stofu Háskólans 1934-1959 ritaði Þórarinn þáttinn um krufning-
ar. Þegar hann lézt, átti liann rétt óloknu viðamiklu ritverki um
dánarorsakir aldraðs fólks á lslandi.
Árið 1939 kvæntist Þórarinn eftirlil'andi konu sinni, Elínu
Sigurjónsdóttur, Jónssonar læknis. Heimili þeirra Elínar og Þór-
arins bar samliug þeirra fagurt vitni. Hið ljúl'a og glaða viðmót
þeirra hjóna ásamt sérstæðum vilja til að greiða úr vanda annarra
gerði það, að heimili þeirra var jafnan mannmargt um lengri eða
skemmri tíma. Eiga vinir og kunningjar margar ánægjulegar
endurminningar frá glaðværum samverustundum á hinu rausnar-
lega heimili þeirra.
Dóttir Þórarins er Kristín Elisabet, gil't Jyrki P. Iv. Mántylá
cand. mag., leikstjóra finnska ríkisútvarpsins í Helsinki, og fóstur-
dóttir Elínar og Þórarins er Guðfinna Edda, gift Finnboga As-
geirssyni, verzlunarmanni í Reykjavík.
Þórarinn Sveinsson var mikill tónlistarunnandi og samdi
nokkur lög á sínum yngri árum. Þórarinn var að cðlisfari traust-
ur, ósérhlífinn og samvizkusamur, og nutu sín vel þeir eiginleikar
hans bæði í almennum og sérhæfðum læknisstörl'um. Hann var
prúðmannlegur í framkomu, hlýr í viðmóti og ávann sér virðingu,
traust og vináttu samstarfsmanna sinna sem og annarra.