Læknablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ
25
minnki þannig smáslagæðamótstöðu (T.P.R.). Dýratilraunir
styðja þessa kenningu, og sýndu Rubin og samstarfsmenn fram
á minnkaða æðamótstöðu í smáæðum hjá hundum eftir diazoxide-
gjöf.11 Hið aukna hjartaútfall samfara blóðþrýstingslækkuninni
er nijög mikilvægt, því að það bendir til, að blóðstreymi um
kransæðar og til heila og nýrna haldist í eðlilegu horfi þrátt fyrir
blóðþrýstingslækkunina. Hafa verið gerðar rannsóknir, sem
styðja þessa tilgátu. Hamby og samstarfsmenn8 fylgdust með
nýrnastarfsemi níu sjúklinga, eftir að blóðþrýstingur hafði verið
lækkaður með diazoxide, og fundu, að nýrnastarfsemiii var
óbreytt, þó að blóðþrýstingi væri haldið nálægt eðlilegum mörk-
um. Var þvagútskilnaður óbreyttur og G.F.R. (glomerular filtra-
tions rate) og E.R.P.F. (effective renal plasma flow) jukust, en
natríumútskilnaður í þvagi minnkaði talsvert. Einnig gerðu þeir
hemodynamiskar mælingar hjá fjórum þessara sjúklinga, og voru
niðurstöður þeirra svipaðar ofangreindum niðurstöðum okkar.
Athuganir Rowe og samstarfsmanna12 á hundum og á fimm
mönnmn benda til aukins blóðrennslis i kransæðakerfinu eftir
diazoxide-gjöf, og voru tölurnar sambærilegar fyrir menn og
hunda í rannsókn hans.
Ekki varð oflækkun á blóðþrýstingi (hypotensio) og ekki
nein einkenni frá miðtaugakerfi í rannsókn okkar, og virðast
sJík einkenni vera sjaldgæf eftir diazoxide-gjöf. Rendir það til
l>ess, að hið aukna hjartaútfall tryggi nægilegt blóðstreymi til
beilans í flestum tilfellum.6 0 Orthostatiskum lágþrýstingi (hypo-
tension) er þó lýst, og' Hamby8 lýsti krömpum eftir blóðþrýst-
ingslækkun hjá einum sjúklingi og T-takka breytingu á hjarta-
límmti ásamt hjartakveisu bjá tveimur sjúklingum. Blóðhvatar
(SGOT, LDH) breyttust ekki hjá sjúldingum þessum, en línurits-
breytingarnar héldust bjá öðrum þeirra.
Diazoxide hefur verið notað við fæðingareitrun (toxemia
gravidarum) hjá sex konum, og lækkaði blóðþrýstinginn hjá
þeini öllum, en hríðir hættu í fimm tilfelliun og þurfti að gefa
þeim pitocin til að koma hríðum af stað aftur.6
Auk þess sem diazoxide er notað til skyndilækkunar á blóð-
þrýstingi hjá sjúklingum, sem er bráð hætta búin af völdum
liáþrýstings, hefur það einnig verið notað með góðum árangri
hjá þehn sjúklingum, sem eru með háþrýsting, sem erfitt er að
lialda í horfinu með venjulegri meðferð. Eru sjúklingar þessir
gjarnan með svæsinn háþrýsting þrátt fyrir vaxandi lyfja-
skammta. Er blóðþrýstingnum þá haldið í skefjum með endur-