Læknablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 58
24
LÆKNABLAÐIÐ
Yfirlit
Diazoxide er kröftugt og mjög fljótvirkt lyf til lækkunar á
blóðþrýstingi, þegar það er gefið í æð. Meðallækkun blóðþrýst-
ingsins (M.A.P.) var 20% tveimur minútum eftir, að lyfinu
hafði verið dælt í æð, og eru þær niðurstöður í samræmi við
ýrnsar aðrar rannsóknir, sem gerðar hafa verið á lyff þessu síðast-
liðin átta ár.
1 rannsókn þessari var ekki fylgzt með, hve lengi blóðþrýst-
ingurinn hélzt lækkaður eftir lyfjagjöfina, en aðrar rannsóknir
hafa sýnt, að áhrif lyfsins vara mjög mislengi. Finnerty6 gaf
33 sjúklingum með hypertensio arterialis 300 mg diazoxide, og
lækkaði blóðþrýstingurinn um 27% fyrstu tvær til fjórar min-
útur. Á næstu mínútum hækkaði blóðþrýstingurinn síðan nokkuð
og hélzt svo 15% lægri að meðaltali en fyrir lyfjagjöfina í 4,7±1,7
klst. 1 rannsóknum Hamby’s8 á 33 sjúklingum gætti áhrifa lyfs-
ins á blóðþrýstinginn í að meðaltali 16 klst. (frá 0.5 til 72 klst.).
Má telja þessar niðurstöður einkennandi fyrir diazoxide.
Til að fá fram skyndilækkun á blóðjjrýstingi með diazoxide
þarf að gefa lyfið mjög hratt í æð, helzt á minna en 15 sekúndum.
Er ástæðan fyrir þessu óþekkt. Ef lyfið er gefið í æð á lengin
tíma en einni mínútu, verða blóðþrýstingslækkandi áhrif þess
lítil sem engin og mjög skammvinn, standa aðeins í nokkrar
mínútur.
Meðalskammtur af lyfinu er 300 mg, og er það framleitt í
þynningunni 15 mg/ml. 1 fyrstu var notuð veikari blanda, og
fékkst þá fram sama lækkun á blóðþrýstingi, en styttri, einungis
2-3 klst.10
1 stöku tilfellum fæst engin blóðþrýstingslækkun, þótt lyfið
sé gefið á ofangreindan liátt, og er ástæðan fyrir því ókunn.
Þegar nægileg blóðþiýstingslækkun fæst ekki, hefur lyfjagjöfin
verið endurtekin á sama hátt án sérstakra aukaverkana eða óþæg-
inda fyrir sjúklinginn.
Við endurteknar lyfjagjafir með diazoxide kemur ekki fram
nein mótstaða (tolerance) gegn lyfinu, og þó að það sé gefið dög-
um saman, eru áhrifin frá síðustu lyfjagjöfinni í engu frábrugðin
þeirri fyrstu 0 0
Eins og að ofan greinir, varð mikil aukning á hjartaútfalli og
minnkuð smáslagæðamótstaða strax eftir lyfjagjöfina, samfara
lækkuðum blóðþrýstingi. Þó að ekki sé vitað nákvæmlega, á
hvern hátt diazoxide lækkar blóðþrýstinginn, er líklegt, að það
hafi bein áhrif á spennuna í smáslagæðum (arteriolar tonus) og