Læknablaðið - 01.02.1971, Qupperneq 41
LÆKNABLAÐIÐ
11
að meðaltali 37 daga í sjúkrahúsi og 41 dag í sambærilegu upp-
gjöri hjá Söderberg. Við skurðmeðferð er þessi tími verulega
styttri, hjá okkur er hann 19.6 dagar, Dahlgren 19 og mjög
áþekkur hjá Lindgren og Barr.13 5 8 i° 12
Þeir, sem fá lyflækningameðferð, eru yfirleitt talsvert lengur
að verða fullvinnufærir en hinir, sem fá skurðmeðferð, ef talið
er frá byrjun einkenna. Þannig er eftir lyflækningameðferð 10.4
mánuðir hjá Söderberg, en eftir skurðmeðferð um 4 mánuðir,
hjá okkur 4.3 mánuðir og Dahlgren 3.5.5 8
Tími frá aðgerð, þ;\r til sjúklingur er fullvinnufær, er einnig
hjá okkur sambærilegur við aðra, þ. e. fjórir mánuðir. I upp-
gjöri hjá Knutsson og Wiberg og sömuleiðis hjá Barr er um
sama tíma að ræða, þ. e. fjóra mánuði, en hjá Dahlgren styttri
eða þrjá mánuði.17 10 8
Það virðist því mega draga þær ályktanir af þessari eftir-
rannsókn, að lokaárangur sé jafngóður af að skera upp tiltölu-
lega snennna — innan átta vikna — við brjósldosi eins og að
skera upp eftir lángvarandi lyflækningameðferð. Árangur okkar
að þessu leyti er samhærilegur við aðra.
Það, sem viimst við að flýta aðgerð, er, að sjúklingurinn þjáist
miklu skemur. Sjúkdómurinn í heild varir stvttri tíma, og miklu
styttri, ef miðað er við lyflækningameðferð eingöngu. Það er
fyrst og fremst tíminn frá byrjun einlcenna til aðgerðar, sem
slyttist, en ekki sá thni, sem fer í bala eftir aðgerð, né heldur
sjúkrahúsvistin nema að litlu leyti.
Mér virðist sem við séum heldur íhaldssamari en aðrir að ráð-
lcggja skurðaðgerð snemma í sjúkdómnum.
Auk þeirra sjúklinga, sem hafa svæsna verki og áberandi ein-
kenni frá taugakerfi, tel ég, að ráðleggja ætti skurðaðgerðir hjá
þeim sjúklingum, sem batnar ekki neitt við lyflækningameðferð
á fjórum til finnn vikum.
1 efniviði þeim, sem hér um ræðir, var sjúkdómsgreining
röng hjá fjórum af 35 sjúklingum, þ. e. 11%. Það er að sjálf-
sögðu keppikefli, að sjúkdómsgreining sé sem allra nákvæmust,
einkum ef fyrirhuguð er skurðaðgerð á byrjunarstigum sjúk-
dómsins.
Samantekt
Þrjátiu og finnn sjúklingar, sem fyrir aðgerð höfðu sjúkdóms-
greininguna hrjósklos í mjóbaki, voru skornir upp i handlæknis-
deild Landspítalans innan átta vikna frá byrjun einkenna á ár-