Læknablaðið - 01.02.1971, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
15
LÆKNABLAÐIÐ
57. árg. Febrúar 1971
FELAGSPRENTSMIÐJAN H F.
VANDAMÁL GIKTSJÚKRA
QG STQFNUN GIKTSJÚK-
Ð0MAFELAGS ÍSLANDS
Á aðalfundi Giktsjúkdómafé-
lags íslenzkra lækna var ákveð-
ið að hefja undirbúning að
stofnun áhugamannafélags til
stuðnings giktsjúkum. Slík fé-
lög liafa starfað af miklum
krafti í öðrum Norðurlöndum
og' í Bandaríkjum Norður-
Ameríku í náinni samvinnu við
félög' lækna á þessu sviði.
Markmið þessara félaga er
að stuðla að framförum í gikt-
sjúkdómafræðum og að bæta
hag giktsjúkra. Leiðirnar, sem
farnar hafa verið að þessu
marki, eru mismunandi eftir
löndum.
1 Finnlandi hefur „Reuma-
stiftelsen'‘, sem er félagsskapur
ríkis, hreppsfélaga, almanna
trygginga og ýmissa annarra
stofnana og félaga, reist eitt
myndarlegasta sjúkrahús fyrir
giktsjúka, sem þekkist, og hafa
nokkrir íslenzkir læknar sótt
það heim og notið þar sérstakr-
ar gestrisni.
1 Svíþjóð starfar „Riksfören-
ingen mot Reumatism“ á svip-
uðum grundvelli. „Riksfören-
ingen“ var stofnuð af stéttarfé-
lögum starfsmanna heilbrigðis-
þjónustunnar ásamt sjúkrasam-
lög'um og' ýmsum óskyldum fé-
lögum, svo sem verkalýðsfélög-
um, búnaðarfélögum, sam-
vinnufélögum, bændasamtökum
og vinnuveitendum. Einnig
geta einstaklingar verið félag-
ar, og sænsku lénin (sýslurnar)
styrkja þessa starfsemi. „Riks-
föreningen“ rekur þrjú sjúkra-
liús fyrir giktsjúka í Svíþjóð,
og eitt á Spáni og' skipuleggur
ferðir þangað. Nokkrir Islend-
ingar hafa notið góðs af þessari
starfsemi.
I Noregi og Danmörku starfa
g'iktsjúkdómafélögin á svipuð-
um grundvelli. Þau taka að sér
að leysa ákveðinn þátt heil-
brigðisþjónustunnar, sem hef-
ur orðið út undan, og njóta til
þess stuðnings almennings og
ýmissa samtaka hans.
I Bandaríkjum Norður-Am-
críku starfar „The Arthritis
Foundation“, áhugamannafé-
lagið, í nánum tengslum við
„American Rheumatism As-
sociation“, sem er giktsjúk-
dómafélag lækna, að því að
efla og sameina alla þá, er
vinna að útrýmingu giktsjúk-
dóma, þeirra sjúkdóma, er
mestum örkumlum valda í
heiminum.
Bandarísku samtökin telja