Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1971, Side 54

Læknablaðið - 01.02.1971, Side 54
20 LÆKNABLAÐIÐ slagæðamótstaða (perifer resistance) eykst, en síðar ganga þessar breytingar svo að einhverju leyti til l)aka, hjartaútfall verður eðli- legt eða aukið og æðamótstaða minnkar, en blóðþrýstingslækkun helzt.J 2 Það vakti því mikla athygli, er i ljós kom, að diazoxide heldur í salt í líkamanum (natrium retention), eykur hjartaútfall og minnkar smáslagæðamótstöðu (perifer resistance), en lækkarsamt hlóðþrýstinginn. Það er kröftugra lyf en chlorothiazid, en vegna aukaverkana liefur ekki reynzt unnt að nota lyfið til langframa við meðferð sjúklinga með hækkaðan hlóðþrýsting. Helztu auka- verkanir eru hækkaður hlóðsykur og hirsutismus, en einnig getur minnkaður útskilnaður á natríum valdið bjúg. Diazoxide hækkar hlóðsykur með þvi að hæla niður insúlín- framleiðslu (secretion),3 og hefur j)essi verkun lyfsins verið notuð við meðferð á blóðsykurskorti (hypoglycæmia).4 Þótt ekki hafi reynzt mögulegt að nota lyfið lil langframa við meðferð á blóðþrýstingi, hafa rannsóknir síðustu átta árin hins vegar leitt í ljós, að lyfið er mjög öruggt og kröftugt til skyndilækkunar á blóðþrýstingi, og rannsókn sú, sem hér verður lýst, var gerð til að meta skyndileg áhrif lyfsins á sjúklinga með háan blóð- þrýsting og til að fylgjast með hemodynamiskum breytingum hjá þeim strax eftir lyfjagjöfina. Rannsóknaraðferð Rarinsókn sú, sem hér verður lýst, var framkvæmd við Re- searcli Division, Cleveland Clinic, Cleveland, Ohio, undir yfir- umsjón Harriet Dustan M.D. og Edlward Frohlich M.D. og er aðeins hluti af víðtækum b 1 óðþrýstingsrannsóknum þar. Hefur rannsóknaraðferðinni verið lýst nánar í fyrri skrifum þeirra.5 Gerðar voru hemodynamiskar mælingar á tólf sjúklingum (tíu körlum og tveimur konum) með háan blóðþrýsting (hyper- tensio arterialis) bæði fyrir og eftir diazoxide-gjöf. Tíu sjúkl- ingar höfðu hypertensio essentialis, en tveir sjúklingar hyper- tensio renovascularis. Hjá níu sjúklingum hafði lyfjagjöf verið hætt a. m. k. einum mánuði fyrir rannsóknina, en þrír sjúldingar tóku enn þá lyf við hækkuðum blóðþrýstingi, er rannsóknin fór fram (sjá 1. töflu). Tilgangur rannsóknarinnar var að fylgjast með hlóðþrýstings- lækkandi áhrifum lyfsins, eftir að það hafði verið gefið hratt í æð (intravenöst), og að fylgjast með áhrifum þess á æðakerfið (hemodynamisk áhrif). Gefin voru 300 mg diazoxide í æð á

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.