Læknablaðið - 01.08.1971, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ
L/EKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
L/EKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson.
Meðritstjórar: Karl Strand og Arinbjörn Kolbeinsson (L.Í.),
Arni Kristinsson og Sævar Halldórsson (L.R.)
57. ÁRG. ÁGÚST 1971 4. HEFTI
IVIIIVilMIMGARORÐ
BJARNI SNÆBJðRNSSON
LÆKNIR
Bjarni Snæbjörnsson, læknir í Hafnarfirði, lézt 24. ágúst 1970.
Með honnm féll í valinn einn af mætnstn mönnum íslenzku
læknastéttarinnar.
Bjarni fæddist 8. marz 1889. Foreldrar iians voru Snæbjörn
steinsmiður Jakobsson, útvegsbónda Steingrímssonar á Litla-Seli
í Reykjavík, og’ kona lians, Málfríður Júlía Bjarnadóttir, bónda
í Bakkakoti á Seltjarnarnesi, Kolbeinssonar.
Bjarni varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík í júní
1909 og scttist um haustið í Læknaskólann; lauk heimspekiprófi
árið eftir og kandídatsprófi í læknisfræði 1914. Að prófi loknu
var hann um átta mánaða skeið settur héraðslæknir í Patxæks-
fjarðarhéraði.
Bjai-ni fór til Danmei’kur í maí 1915 og dvaldist þar við
framhaldsnám þar til i febrúar 1917. Meðan hann var í Danmöi’ku
aflaði hann sér framhaldsmenntunar, bæði i lyflækningum og
handlækningum, og starfaði auk þess um stundar sakir á bai’na-