Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 28
134
LÆKNABLAÐIÐ
Viðbót við fylgiskjöl ársskýrslu
L. í. 1968 -1969
Reglugerð um störf lækna við Sjúkrahúsið í Húsavík
Eftirfarandi skjöl voru lögð fram á aðalfundi L.í. sem viðbót við
fylgiskjöl ársskýrslu L.í. fyrir árið 1969, eftir að ársskýrslu ásamt
fylgiskjölum hafði verið dreift á aðalfundi 1969.
Þegar ársskýrslan ásamt fylgiskjölum var birt í 6. hefti Lbl., 56.
árg., láðist að gæta þess, að þessi viðbótarfylgiskjöl kæmu með, og
birtast þau því nú í þessu blaði.
1. gr.
Yfirlæknir sjúkrahússins er formaður læknaliðs þess. Hann hefur
réttindi og starfsskyldur samkvæmt sjúkrahúslögum, en auk þess skal
hann skipuleggja heilbrigðisþjónustu spítalans og hafa eftirlit með
starfsliði, er að henni starfar. Hann tekur við beiðnum um innritun
nýrra sjúklinga og stuðlar að hagræðingu í daglegum rekstri. Hann
ber ábyrgð á heilbrigðisþjónustu sjúkrahússins gagnvart sjúkrahús-
stjórn.
2. gr.
Yfirlæknir og aðrir læknar, sem ráðnir eru að sjúkrahúsinu, skipa
samstarfsnefnd, er sé ráðgefandi fyrir stjórn sjúkrahússins um allt, er
varðar læknisþjónustu, samstarf og samhæfingu starfskrafta. Hún skal
stuðla að þróun í starfsemi sjúkrahússins, þjónustugæðum, menntun
lækna og annars starfsliðs. Samstarfsnefndin ber ábyrgð á því, að
staðli um læknisþjónustu sjúkrahúsa, ef settur verður, sé fylgt. Yfir-
læknir er málsvari samstarfsnefndar gagnvart sjúkrahússtjórn.
3. gr.
Samstarfsnefnd heldur fundi daglega, þegar þess er kostur og
ekki sjaldnar en 2-3 í viku. Á þessum fundum verði m. a. fjallað um
eftirfarandi atriði:
a. Skýrsla um síðustu vakt (vaktir).
b. Greint sé frá innritun bráðra sjúkdómstilfella í sjúkrahúsið.
c. Rætt um sjúkdómsgreiningu og meðferð sjúklinga á sjúkrahúsinu
og ávallt skýrt frá breytingum á meðferð.
d. Rædd sérstök sjúkdómstilfelli, valin daginn áður eða með lengri
fyrirvara.
e. Ákvörðun um stundun sjúklinga, þ. á m. hvaða læknir skuli aðal-
lega annast meðferð „akut“ innlagðs sjúklings (sjúklinga) frá síð-
asta fundi nefndarinnar,