Læknablaðið - 01.08.1971, Síða 37
LÆKNABLAÐIÐ
141
Tekið á móti forsetahjónunum í upphafi afmælishófs.
42 blaðsíður, prentuð á vandaðan pappír og gefin út í 300 tölusettum
eintökuna. Eitt eintak var ótölusett, en það var sýnishorn um væntan-
legan frágang ritsins.
Giktsjúkdómafélag íslenzkra lækna hafði fyrirhugað að halda
„symposium" um arthritis rheumatoides, og tókust samningar milli
stjórnar Giktsjúkdómafélagsins og stjórnar L.Í., að „symposium“ þetta
yrði einn liður í afmælishátíðinni, en skrifstofa L.í. annaðist undir-
búning að heilbrigðisráðstefnunni og samdi dagskrá hennar. Einn lið-
ur, sem þar átti -að vera, varð að falla niður, en það var erindi um
þyrluflug við íslenzkar aðstæður. Margir íslenzkir læknar telja, að
þyrlur geti í framtíðinni gegnt veigamiklu hlutverki í sambandi við
læknisþjónustu dreifbýlisins. Slík starfsemi mun vera komin á nokk-
urn rekspöl í Noregi, og var ætlunin að kynna þessar nýjungar á ráð-
stefnunni.
í byrjun september vcru send boðsbréf til iæknafélaga Norður-
landa, svo og til brezka læknafélagsins (BMA), og þeim boðið að
senda fulltrúa á afmælishátíðina. Var þá sérstaklega miðað við af-
mælishófið, enda ekki talið líklegt, að erlendir fuiltrúar hefðu mikið
gagn og ánægju af að hlusta á íslenzkar umræður á fræðslufundi eða
heilbrigðísráðstefnu.