Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 49

Læknablaðið - 01.08.1971, Page 49
LÆKNABLAÐIÐ 149 svo þétt setinn, að aðeins var unnt að koma dagskrá fyrir í stólum, enda ekkert aukapláss á borðum. Eigi þótti, við nánari athugun, rétt, að lyfjasýni væru útbýtt til annarra en lækna; var því tekið það ráð, að lyfjasýni þessi voru afhent læknum síðar um kvöldið. Áður en hófið sjálft hófst frá kl. 18.00-19.45, var sameiginleg kynningardrykkja veizlufólks og g'esta iæknafélagsins í anddyri Domus Medica. Var fatageymslu breytt í vínstúku og bókaherbergið framan við skrifstofuna einnig notað fyrir samkvæmið. Reyndist húsnæði þetta nægjanlegt, enda þótt þarna væru yfir 170 manns. Kl. 19.45 var setzt að borðum, en þá kom til hófsins forseti ís- lands, dr. Kristján Eldjárn, og frú hans, Halldóra Eldjárn, en þau gengu síðast til borðs ásamt formanni félagsins. Kl. 20.00 setti formaður félag'sins hófið með ræðu. í lok ræðunnar tilnefndi formaður Bjarna Bjarnascn sem veizlustjóra, og tók hann við stjórn hófsins. Tvær dagskrárræður voru fluttar undir borðum: I. Minni félagsins, flutt af Arinbirni Kolbeinssyni (fskj. 4), II. Minni kvenna, flutt af Guðmundi Karli Péturssyni (fskj. 5). Skemmtiþáttur Ómars Ragnarssonar, sem settur hafði verið á dagskrá, féll niður vegna óstundvísi listamannsins. Kveðjur og árnaðaróskir fluttu hr. forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn; landlæknir, Sigurður Sigurðsson, og formaður Læknaíélags Reykjavíkur, Sigmundur Magnússon. Af hálfu erlendra fulltrúa flutti aðalræðu dr. Odd Bjercke frá Noregi. Hann færði félaginu að gjöf karöflu, sem á var letrað: „Velkommen hvor du er naar du er Ærlig Ven, det glas som skænkes fuldt for dig og dine lige betyder at din Vært til dig og Dem vil sige „Velkcmmen förste gang og altid hid igien““. Þá flutti Sture Járnmark frá Stokkhólmi ávarp og færði félaginu að gjöf leirskál mikla og haganlega gerða. Finnski fulltrúinn, próf. Nevanlinna, flutti einnig ávarp og færði félaginu stóra myndskreytta skál. Þá flutti dr. James Cameron frá British Medical Association stutta kveðju. Páll V. G. Ivolka kvaddi sér hljóðs og flutti ávarp og færði fé- laginu að gjöf mynd af „hinum mikla sláttumanni“ ásamt þýðingu Guðmundar Björnsonar á kvæði um Pasteur (fskj. 6). Páll Gíslason, yfirlæknir frá Akranesi, söng einsöng í Malakoff við g'óðar undirtektir og mikinn fögnuð veizlugesta. (Matseðill, sbr. fskj. 7). Við háborð var röð, sem hér segir, frá vinstri: Borgarstjóri, Geir Hallgrímsson; félagsmálaráðherrafrú, Jóna Jónsdóttir; dómsmálaráð- herra, Jóhann Hafstein; frú Sigþrúður Friðriksdóttir, kona formanns L.Í., herra forseti íslands, dr. Kristián Eldjárn; forsetafrú, Halldóra Eldjárn; formaður Læknafélags íslands, Arinbjörn Kolbeinsson; dóms- málaráðherrafrú, Ragnheiður Hafstein; félagsmálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsscn; borgarstjórafrú, Erna Finnsdóttir. Formaður veitti gjöfum viðtöku., flutti bakkir til hvers gefanda um sig. Undir borðhaldi lék Aage Lorange á píanó, og veizlustjóri stjórnaði söng, en fyrir dansi lék hliómsveitin Kátir félagar. Þátttaka í borðhaldi voru 172, þar af 18 gestir. Að loknu borðhaldi var stiginn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.