Læknablaðið - 01.08.1971, Qupperneq 50
150
LÆKNABLAÐIÐ
dans til kl. 3.00 að sunnudagsmorgni við mikinn fögnuð, en allt fór
hófið hið bezta fram.
Sunnudaginn 6. október bauð félagið hinum erlendu gestum til
skemmtiferðar til Hveragerðis, þaðan um Þrastarlund upp með Sogi
og Þingvallavatni til Þingvalla.
Fyrst var numið staðar á Kambabrún í fögru veðri, sólskini og
logni, og var skyggni gott. í Hveragerði voru skoðuð gróðurhús. Vel
hittist á með gos í Grýtu. Þá skoðuðu gestir elliheimilið í Hveragerði
og snæddu þar hádegisverð í boði Gísla Sigurbjörnssonar forstjóra.
Þótti gestum mikið til koma um gróðurhúsaræktina og frábært skipu-
lag elliheimilisins þar.
Á Þingvöllum var stanzað og gestum sýndir helztu sögustaðir, þar
á meðal gengið á Lögberg.
Eftir heimkomu til Reykjavikur var gestum, svo og öðrum þeim,
sem þátt tóku í förinni, boðið til síðdegisdrykkju og kvöldverðar á
heimili formanns, en næsta morgun héldu hinir erlendu gestir flug-
leiðis heim.
ÝMIS ATRIÐI
Félagið greiddi flugfargjöld fram og til baka frá London fyrir
brezka fulltrúann, svo og hótel og allan dvalarkostnað hér heima.
Einnig greiddi það hótel- og allan dvalarkostnað fyrir fimm gesti, sem
komu frá Norðurlöndum, en fargjöld greiddu þessir gestir sjálfir. Það
þótti hlýða að greiða flugfarmiða fyrir brezka fulltrúann, þar sem
hann kom hér einnig til þess að flytja erindi á ráðstefnunni. Hinir
komu aðeins sem fulltrúar, og mun það vera venja, að í slíkum til-
fellum er aðeins boðinn dvalarkostnaður á hóteli og stundum annar
dvalarkostnaður einnig, Öllum læknum, sem sóttu heilbrigðisráðstefn-
una, var boðin þátttaka í síðdegisdrykkju á föstudagskvöldi, en í af-
mælishófinu sjálfu var aðeins boðið þremur læknum til þátttöku, þ. e.
landlækni, sem æðsta manni stéttarinnar, Ólafi Þorsteinssyni, sem
elzta núlifandi stofnanda Læknafélags íslands, og Biarna Konráðs-
syni, sem sýndi Læknafélaginu mesta rausn allra einstaklinga í sam-
bandi við afmælið, en hann bauð, eins og áður er sagt, ókeypis prentun
á hátíðardagsskránni. Því miður gat Ólafur Þorsteinsson ekki mætt
til hófsins.
Undirbúningur og skipulagning þessarar þríþættu afmælishátíðar
reyndist mikið starf fyrir skrifstofuna, ekki sízt að sjá um vélritun
og alla fjölritun fyrir fræðslufundinn, vélritun á flestum þeim erind-
um, sem flutt voru á ráðstefnunni, og fjölritun á allmörgum þeirra,
útsendingu boðskorta, sölu aðgöngumiða, móttöku á kveðjum fyrir af-
mælisritið og fiölmargt fleira. Allt þetta leysti skrifstofan af hendi
fljótt og vel, þannig að aldrei stóð á framkvæmdum.
Þakkarbréf voru send þeim, sem sendu blóm og árnaðaróskir eða
kveðjur til félagsins. Þakkarbréf bárust frá hinum erlendu gestum.