Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 63

Læknablaðið - 01.08.1971, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ 161 það gafst mér vel, að tekið var á móti mér í þennan heim af varfærum og hlýlegum konuhöndum, þá myndi ég ekki annað íremur kjósa mér en að handan við tjaldið mikla taki í annað sinn á móti mér góð og nærfærin kona. Og loks þetta: Af öllu því undursamlega, sem guð hefir skapað og gefið oss mönnunum, er konan það undursamlegasta, kóróna sköpunarverksins, hin mikla opinberun, upphaf og takmark flestra vorra glæsilegustu drauma, og þess vegna þráum við hana heitast, elskum hana mest, dáum hana mest og skuldum henni mest. Herrar mínir, lyftum glösum vorum, og með djúpri virðingu, aðdáun og miklu bakklæti drekkum vér vorra góðu og elskulegu lífs- förunauta, kvennanna, heillaskál. Fylgiskjal 6 P. V. G. Kolka: Herra forseti íslands, virðulega forsetafrú! Kæru kollegar og aðrir samkomugestir! Ég hef leyft mér að kveðja mér hljóðs á þessum merkisdegi ís- lenzkrar læknastéttar til þess að efna áður gefið heit um að afhenda Læknafélagi íslands til eignar myndina „Minning Pasteurs". Mér er mjög minnisstætt það kvöld snemma árs 1917, er Guð- mundur Björnson landlæknir flutti fyrirlestur sinn um Louis Pasteur og las jafnframt upp þýðingu sína á kvæðinu „Frægð Pasteurs“ eftir próf. Charles Richet, sem árið 1913 hafði hlotið Nóbelsverðlaunin í læknisfræði. Fyrirlesturinn var haldinn fyrir fullu húsi í Bárubúð, sem þá var stærsta samkomuhús Reykjavíkur. í þá daga átti maður ekki að venjast öðruvísi ljóðalestri en þeim, sem lagði allar áherzlur á stuðla og rím, án tillits til efnis og innihalds. Guðmundur Björn- son hafði mestu lítilsvirðingu á slíku ,,strokki“, sem hann kallaði svo, og sýndi það með því að skunda fram og aftur um leiksviðið með talsverðum handaslætti og líkamssveigjum, en ég sat undir lestrinum sveittur af feimni yfir því, að hann yrði sér til athlægis með þessu látbragði. Undirtektir áheyrenda voru þó mjög góðar, og blöðin fóru lofsamlegum orðum um Ijóðalestur hans. Einn af áheyrendunum var Ríkharður Jónsson, myndlistarmaður. Hann teiknaði síðan myndina „Pasteurs minning", sem sýnir Dauðann horfandi hryggan í bragði á það skarð, sem læknisfræðin hafði höggvið í ljá hans. Þessa mynd gaf Ríkharður Guðmundi í sumargjöf þá um vorið. Guðmundur skrif- aði undir myndina fjórar ljóðlínur úr þýðingu sinni, og hékk myndin inni í skrifstofu hans, það sem hann átti ólifað. En eftir lát hans gaf frú Margrét, ekkja hans, mér myndina, og hefur hún hangið í bókaherbergi mínu þar til nú, er læknafélögin taka við henni. Það er von mín, að henni verði valinn virðulegur samastaður hér í Domus Medica. Ég hef árum saman reynt árangurslaust að hafa upp á kvæðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.