Læknablaðið - 01.08.1971, Síða 75
LÆKNABLAÐIÐ
Alþjóðleg gíktarrannsóknarverilaun
er GEIGY veitir
í tilefni XIII. alþjóðlegu giktsjúkdómaráðstefnunnar í Kyoto
(Japan verða giktarrannsóknarverðlaun GEIGY veitt öðru sinni.
CIBA—GEIGY Ltd., Basel, veitir 50.000 svissneska franka til
þessara verðlauna. Eigi verða veitt fleiri en þrenn verðlaun, og
fyrstu verðlaun munu nema a.m.k. 25.000 s.fr.
Athygli er vakin á eftirfarandi:
1. Hinar nýju reglur um verðlaun þessi fást hjá General Secre1-
tary, Prof. F. Delbarre, 15 rue Gay Lussac, Paris Ve, Frakk-
landi, eða hjá Excecutive Secretariat of the International League
against Rheumatism, P.O. Box 155, 4016, Basel, Sviss.
2. Þar sem skilafrestur rennur út í septemberlok 1972, eru þeir,
sem áhuga hafa á þátttöku, beðnir um að leita nánari upp-
lýsinga hjá ofangreindum aðilum sem allra fyrst.
Framkvæmdaráð Alþjóðasambands
Giktsjúkdómafélaga.