Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1971, Side 10

Læknablaðið - 01.12.1971, Side 10
246 LÆKNABLAÐIÐ EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Könnuð voru 19 dauðsföll af völdum koloxíðs í Reykjavík og grennd, en þau höfðu borizt Rannsóknastofu í meinafræði til réttarlæknisfræðilegra athugana og Rannsóknastofu í lyfja- fræði varðandi réttarefnafræðilegar rannsóknir á tímabilinu frá hausti 1966 og til ársloka 1970. Lík hinna látnu voru öll krufin. Við krufningu voru gerðar venjulegar athuganir svo og tekin sýnishorn af líffærum til smá- sjárskoðunar, ef líkindi þóttu vera til þess, að um líffæraskemmd- ir væri að ræða. Þá var tekið blóð og þvag, ef þvag var í blöðru, til réttarefnafræðilegra rannsókna. Koloxíðmettun blóðrauða var ákvörðuð með aðferð Wolff (1941). Tæknileg' vandkvæði eru á því að ákvarða koloxíð með þessari aðferð hér á landi. Voru því sýni send til Kaupmanna- hafnar, og var koloxíðmettun blóðrauða ákvörðuð á lífefnafræði- deild Réttarlæknisfræðistofnunar Kaupmannahafnarháskóla. Nið- urstöðutölur eiga við hundraðshluta blóðrauða, sem mettaður er koloxíði, miðað við g/100 ml blóðs (% (w/v)). Þess skal hér getið, að ekki þarf að verja blóðsýni, scm ætlað er til ákvörð- unar á koloxíðmettun, með paraffínlagi. Magn alkóhóls í blóði og ])vagi var ákvarðað með alkóhól- dehýdrógensaaðferð (sbr. Brink, Bonnichsen & Theorell 1954). Verður þessari aðferð með áorðnum breytingum lýst síðar. Niður- stöðutölur eiga við alkóhól í g/1, þ. e. a. s. %D (w/v). Blettagreining á þynnu (thin layer chromatograpliy) var not- uð til þess að greina, hvort barbítúrsýrusambönd eða önnur svefnlyf og róandi lyf væru í blóðsýnum. Verður þessum aðferð- um lýst síðar. Yfirleitt var ekki leitað að þessum lyfjum, nema upplýsingar væru fyrir hendi, er bentu til þess, að lyf af þessu tagi kynnu að hafa verið notuð skömmu fyrir andlátið. ATHUGANIR OG NIÐURSTÖÐUTÖLUR RANNSÓKNA Niðurstöðutölur rannsókna og' ýmis atriði varðandi athuganir er að finna í töflu 1. Einungis 2 (nr. 1 og 6) af 19 einstaklingum í safninu voru konur (31 og 38 ára gamlar). Meðalaldur karlmanna var 43 ár (18-77 ára). Eftir árum skiptist efniviðurinn þannig, að 2 létust árið 1966, 1 árið 1967, 2 árið 1968, 10 á árinu 1969 og 4 árið 1970. Hinn mikla fjölda banvænna koloxíðeitrana árið 1969 má að verulegu leyti rekja til eins brunaslyss, er varð 6 mönnum að bana.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.