Læknablaðið - 01.12.1971, Qupperneq 16
252
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐIÐ
57. árg. Desember 1971
FELAGSPRENTSMIÐIAN H.F
BREYTINGAR Á
RITSTJÓRN
Með slðasta hefti Lækna-
blaðsins 1971 verða samkvæmt
tillögu L.R. og L.l. gerðar
breytingar á ritstjórn blaðsins.
Ritstjórn sú, sem nú lætur
af störfum, þakkar stjórnum
læknafélaganna, skrifstofufólld
á skrifstofu læknafélaganna og
ritstjórnarmönnum, sem liafa
starfað við blaðið um lengri
eða skemrm'i tima á síðustu sex
árum, góða samvinnu. Sérstak-
lega þakkar ritstjórn Jóni A.
Jónssyni, cand. mag., ritstjóra
Orðabókar Háskóla Islands, vel
unnin störf við Læknablaðið.
Hann lét af störfum í haust.
Við prófarkalestri og málvönd-
un hefur tekið Sven'ir Tómas-
son, cand. mag.
Varfærnislegar breytingar
hafa verið gerðar á blaðinu síð-
ustu sex árin. Meðal þess helzta
eru breytingar á kápu blaðs-
ins, nýjar leturgerðir valdar og
reynt eftir föngum að staðla
að nokkru notkun þeirra i sam-
ræmi við fasta þætti og ákveð-
ið blaðefni. Gæði pappírs í
blaðið hafa verið aukin. Reynt
liefur verið að auka kröfur til
liöfunda um allan frágang á
handritum.
Stærsta verkið, sem fráfar-
andi ritstjórn hefur stuðlað
að, með aðstoð og' samþykki
stjórna L.l. og L.R., er að fá
gerða heildar efnis- og böf-
undaski'á Læknablaðsins, sem
nær frá þeirri, sem unnin var
af Sigurjóni Jónssyni, lækni,
og birtist 1947 í Læknablaðinu.
Sú efnis- og böfundaskrá, sem
nú liefur verið unnin, mun val-
inn útgáfutími af binni nýju
ritstjórn og þá væntanlega
kynnt.
Fráfarandi ritstjórn óskar
þess, að Læknablaðið nýtist
sem bezt, bæði sem þekkingar-
brunnur og til eflingar á fé-
lagsanda og samvinnu lækna.
TÓBAKSREYKINGAR -
KOLOXÍÐ -
ÆÐAKÖLKUN
1 þessum dálkum hefur áður
verið vikið að því ógnvekjandi
samhengi, sem virðist vera
milli sígarettureykinga annars
vegar og tíðni lungnasjúkdóma
og' sjúkdóma í æðum og hjarta
bins vegar. Má raunar segja, að
orsakasamliengi þctta verði æ
ljósara með hverju ári sem lið-
ur, enda er stöðugt unnið að
grunnrannsóknum og tíðni-
rannsóknum á þessu sviði. 1