Læknablaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 52
278
LÆKNABLAÐIÐ
3) Eru nýir samningar við heimilislækna? Eða er það kannski leynd-
armál? Væri hægt að fá gjaldskrá?
4) Hvernig er skriftin?
Hvað viðkemur erindi mínu forðum. Ég á hér handrit í fórum
mínum. Skal viðurkennt, að það er heldur subbulegt. Var upphafið
ekki glæsilegt, þar eð þáverandi einkaritari minn hafði svo mörgum
hnöppum að hneppa, að allt var á hvolfi og síðustu síður handritsins
hrifsaðar úr ritvélinni 16 sekúndum fyrir flutning, og voru þá allir
aðilar aðkrepptir, flytjandi, einkaritari og ritvél.
Ég hirði ekki um að breyta miklu. Sumt er nokkuð tímabundið
og annað nokkuð gamalt nú, en þar sem þetta verður birt innan um
erindafjöld frá þessum löngu liðnu tímum, þá skaðar sá anachronismi
ekki mikið, held ég. Og flest stendur enn fyrir sínu, furðulegt nokk.
Legg ég því erindið hjá.
Bið svo að heilsa ykkur öllum og hlakka til að heilsa ykkur aftur,
vonandi á þessu ári. Sendi kennski fréttakort (how about that?).
Ólafur Mixa