Læknablaðið - 01.12.1976, Page 7
LÆKNABLAÐIÐ
167
Guðjón Magnússon og Óíafur Sveinsson
KÖNNUN Á HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU I SKAGAFIRÐI
SKÝRT ER FRÁ FYRIRKOMULAGI HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU í
SKAGAFIRÐI, FRAMKVÆMD OG NIÐURSTÖÐUM KÖNNUNAR,
ER ÞAR FÓR FRAM 11. FEBRÚAR TIL 15. MARS 1974. RÆTT UM
ANNMARKA OG GILDI ÞEIRRAR KÖNNUNAR FYRIR SKIPU-
LAGNINGU HEILBRIGÐISMÁLA.
SKIPULAG HEILBRIGÐIS-
MÁLA í SKAGAFIRÐI
Fyrsti læknir er gegndi Skagafirði var
Magnús Guðmundsson. Hann var læknir
Norðlendinga frá 1766 til 1775. Hann sat
á Ökrum og Úlfsstöðum í Blönduhlíð. Ari
Arason varð læknir í Norðlendingafjórð-
ungi 1801. Hann sat fyrst á Víðivöllum.
en síðar á Flugumýri. Ari sagði embættinu
lausu 1820.
Árið 1835 réðu Húnvetningar til sín Jósef
Skaftason og launuðu úr eigin vasa. Árið
1837 fékkst konungsstyrkur til þess að
greiða laun læknisins gegn því að hann
sinnti jafnframt kalli Skagfirðinga. Jósef
sat að Hnausum í Húnaþingi.
Þessi tilhögun hélst til 1856. Sérstakur
læknir gegndi ekki Skagafirði fyrr en Bogi
Pétursson var settur 1876 til þess að gegna
9. læknishéraði (skv. lögum frá 1875).
Læknishéraðið náði yfir Húnavatnssýslu
austan Blöndu og Skagafjarðarsýslu nema
Fellshrepp, Holtshrepp og Höfðasókn. Bogi
sat á Sjávarborg. Síðan hafa læknar setið
í Skagafirði.
Með lögum frá 1899 voru Sauðárkróks-
og Hofsóshéruð stofnuð.3 Læknissetur á
Sauðárkróki og Hofsósi.
Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki var
reist árið 1906. Það tók til starfa 23. feb.
1907. Voru þá í húsinu 4 sjúkrastofur með
10 sjúkrarúmum. Aukið var við húsið 1922.
Var það lengst af meðan það starfaði talið
rúma 16 til 22 sjúklinga. Hús þetta stendur
enn sem Aðalgata 1, norðan við kirkjuna
og er nú safnaðarheimili. Rekstri sjúkra-
húss lauk í þessu húsi í árslok 1960, þegar
starfsemi fluttist í núverandi sjúkrahús.
Frá árinu 1971 var Hofsóshéraði þjónað
frá Sauðárkróki, en í lögum um heilbrigðis-
þjónustu frá 16. apríl 1973 var Hofsós-
hérað lagt niður og Skagafjörður gerður
að einu heilsugæzluumdæmi — H2 Sauðár-
króksumdæmi. Tveir hreppar voru þó und-
anskildir, Haganes- og Holtshreppur, sem
tilheyra Siglufjarðarumdæmi.
Sauðárkróks Apótek var stofnað með
leyfisveitingu 23. maí 1921.
Tannlæknir sezt að á Sauðárkróki 1949.
SJÚKRAHÚS
SKAGFIRÐINGA
Sjúkrahús Skagfirðinga tók til starfa í
núverandi byggingu 3. janúar 1961. í
sjúkrahúsinu er vistunarrými fyrir 40
sjúklinga. Þar er einnig skurðstofa, aðstaða
til röntgenmyndatöku, rannsóknarstofa og
nokkur aðstaða rannsókna á ferlivistar-
sjúklingum. Nánast ekkert rými er til
endurhæfingar.
Sjúkrahúsið var ekki hannað með það
fyrir augum, að þar færi fram öll heilsu-
gæzla fyrir héraðið. Samt sem áður hefur
sjúkrahúsið orðið að gegna því hlutverki
síðustu ár. Hefur um alllangt skeið verið
í undirbúningi bygging heilsugæzlustöðvar
í tengslum við sjúkrahúsið. Dvalarheimili
fyrir aldraða er ekki í Skagafirði en helm
ingur (20 rúm) af vistunarrými sjúkra-
hússins er notaður fyrir hjúkrunarsjúkl
inga.
STARFSFÓLK
SJÚKRAHÚSSINS
1. janúar 1974 störfuðu alls 50 manns
við sjúkrahúsið, þar af 39 í fullu starfi.
Starfslið skiptist þannig:
Læknar voru 3, sjúkrahúslæknir og tveir í
hluta af starfi.
Hjúkrunarkonur 5.
Ljósmæður 2.
Meinatæknir 1.
Ritarar 2.
Sjúkraliðar 4.