Læknablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
169
38 km og að Ketilási í Fljótum eru 75 km.
Að Hrauni á Skaga, nyrztu mörkum vestan
megin fjarðarins, eru 55 km.
Samgöngur eru greiðar á sumrum, bæði
með einkabílum, mjólkurbílum og í sam-
bandi við áætlunarferðir Akureyri —
Reykjavík.
Þegar þessi könnun var gerð voru flug-
ferðir þrisvar í viku frá Sauðárkróki til
Reykjavíkur. Áætlunarferðir voru tvisvar
í viku frá Sauðárkróki til Varmahlíðar í
sambandi við ferðir Akureyri — Reykja
vík. Samgöngur innan héraðs á vetrum
eru með mjólkurbílum, sem koma annan
hvern dag úr öllum hlutum læknisum-
dæmisins, nema Skefilsstaðahreppi, til
Mjólkursamlags Skagfirðinga á Sauðár-
króki.
Snjóþyngsli eru mikil í héraðinu, eink-
um norðausturhluta þess, Fljótum, og einn
ig er Laxárdalsheiði mikill farartálmi fyrir
íbúa Skefilsstaðahrepps á vetrum.
Samgöngur hafa batnað mikið í seinni
tíð vegna þess að vegir eru ruddir vegna
mjólkurflutninga.
Aðalvindáttir í héraðinu eru norð-
norðaustan átt (norðaustan) og suðvestan
átt. Meðalvindhæð á Sauðárkróki er 2.9
stig. Logn er nokkuð mjitið eða 28% allrar
veðráttu. Meðalárshiti á Sauðárkróki var
á árunum 1931-1960 3.8 stig. Til saman-
burðar var meðal árshiti á sama tímabili
3.9 stig á Akureyri og 5.6 stig í Reykjavík.
Aðalatvinna héraðsbúa hefur verið land-
búnaður og þá meira sauðfjárrækt en
mjólkurframleiðsla. Sjómennska og útgerð
hefur þó farið í vöxt í tveimur aðal þétt-
býliskjörnunum, Sauðárkróki og Hofsósi.
LÝÐFRÆÐILEGAR
UPPLÝSIN GAR
Ekki er völ á nýrri upplýsingum um
íbúa Skagafjarðar frá Hagstofu íslands en
frá 1/12 1970, nema að því, er varðar
heildarfjölda íbúa og fjölda karla og
kvenna. Við athugun á niðurstöðum könn-
unarinnar, að því er varðar aðsókn til
lækna eftir aldri og kyni verður því stuðst
við tölur um íbúa frá 1/12 1970.
Athygli vekur að 11.4% íbúa eru yfir
65 ára aldur og 16.7% eru 60 ára og eldri
(14% í Reykjavík).
HEILSU GÆZLA
Allir læknarnir starfa að almennum
lækningum og hafa viðtalstíma á sjúkra-
húsinu. Tveir hafa viðtalstíma 2 daga í
viku, en einn 3 daga í viku, auk viðtals-
tíma í læknismóttöku á Hofsósi einn dag
í viku. Viðtalstímar eru raðaðir og áætlað-
ar 10-15 mínútur fyrir hvern sjúkling. Er
sjúklingum frjálst að leita þess læknis er
þeir óska, þar eð unnið er eftir greiðslum
fyrir hvert læknisverk.
Símaviðtalstíma hafa læknamir hálfa
klukkustund árdegis.
Vaktir lækna eru ein vika í senn eða
eftir samkomulagi og gegnir vaktlæknir
jafnframt sjúkrahúsinu.
Haldnar eru sjúkradagbækur, sem rit-
arar vélrita eftir segulbandi. Jafnframt er
kominn upp vísir að sjúkrameinaskrá yfir
íbúa héraðsins.
Raðaðir tímar eru fyrir ungbarnaeftirlit,
ónæmisaðgerðir, mæðraeftirlit og sýnitöku
úr leghálsi. Ljósmæður og sjúkraliði að-
stoða við þessa starfsemi.
Lyfjabúð er starfandi á Sauðárkróki.
Aldur Menn Kon,ur
Mynd 2. — íbúar í Skagafirði 1. des. 1970.